Theresa May segir tæknirisa bera ábyrgð í baráttunni gegn hryðjuverkum Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 25. maí 2017 22:17 Theresa May mun hitta leiðtoga G7 ríkjanna nú um helgina. Vísir/Getty
Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, mun hvetja leiðtoga G7 ríkjanna til að fá tæknirisa á borð við Google og Facebook í lið með sér til að berjast gegn skilaboðum öfgahópa, á borð við Íslamska ríkisins, á internetinu. Hér sé um að ræða samfélagslega ábyrgð fyrirtækjanna. Fundur leiðtoganna mun eiga sér stað á Sikiley dagana 26.maí - 28.maí.Á vef Guardian kemur fram að May telji að baráttan við öfgahópa sem þessa sé að færast frá vígvellinum yfir á internetið. May bendir á að samfélagsmiðlar og leitarvélar geti haft áhrif á innihald sinna miðla og þannig komið í veg fyrir að öfgahópar geti komið áróðri sínum á framfæri. Tæknirisarnir gætu einnig látið yfirvöld vita um leið og vafasamt efni myndi birtast. May bendir á að samvinna á milli ríkjanna skipti miklu máli hvað þetta varðar. Samkvæmt Guardian hefur May viðrað þá hugmynd sína að þeir miðlar sem ekki sjái sér fært að aðstoða við að uppræta hatursfullan áróður verði dregnir til ábyrgðar en þó voni hún að ekki þurfi að koma til þess. Óhætt er að segja að mikið verk er fyrir höndum en May mun þurfa að sannfæra Donald Trump að taka þátt í þessu verkefni með sér enda eru margir af stærstu samfélagsmiðlum heims staðsettir í Bandaríkjunum.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Sjá meira