Enski boltinn

Tók á sig launalækkun og sér ekki eftir því

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Luiz elskar að fagna titlum með Chelsea.
Luiz elskar að fagna titlum með Chelsea. vísir/getty
Brasilíski varnarmaðurinn David Luiz tók á sig launalækkun er hann kom aftur til Chelsea frá PSG en hann segir það hafa verið allt þess virði.

Chelsea seldi hann til PSG fyrir 50 milljónir punda árið 2014 en keypti hann til baka tveimur árum síðar á 34 milljónir punda.

„Ég er ekki alltaf hrifinn af því að hafa hlutina auðvelda. Þess vegna tók ég áhættu og er mjög ánægður með það. Það var rétt ákvörðun að koma til baka,“ sagði Luiz en hann verður í vörn Chelsea í bikarúrslitaleiknum á morgun.

„Ég elska að taka áhættur. Ef maður tekur ekki áhættur í lífinu þá upplifir maður ekki neitt nýtt. Ég tók á mig launalækkun til að koma aftur hingað en það er í góðu lagi. Guð hefur gefið mér svo mikið og ég gæti ekki verið ánægðari.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×