Bjóða kassabílaferðir Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. maí 2017 09:45 Bíllinn er fljótur í förum þegar margir ýta. Vísir/Eyþór Árnason
Þeir Hörður Valur Reynisson, Úlfur Ægir Halldórsson, Brynjar Bragi Einarsson, Jón Sölvi Magnússon og Ari Páll Egilsson hafa stofnað fyrirtæki utan um kassabílarekstur. Ari Páll: Þetta byrjaði allt á teikningu þegar ég var í sumarbústað, þar kviknaði hugmyndin að því að smíða kassabíl. Nokkrum mánuðum seinna fannst okkur, mér og vinum mínum, upplagt að byrja, Jón Sölvi var alveg til í það, Hörður styrkti okkur mjög mikið og líka Brynjar. Úlfur Ægir: Ég kom ekki inn í þetta dæmi fyrr en nýlega. Eiginlega bara fyrir svona mánuði. Hvar fenguð þið efnið? Ari Páll: Hér og þar, sumt í bílskúrum heima hjá okkur og dekkin eru af barnavagni sem við fundum í Góða hirðinum. Brynjar: Bíllinn var eiginlega ekki kominn á götuna fyrr en í síðasta mánuði. Það tók allt sinn tíma. Svo erum við alltaf að endurbæta og gera við. Ari Páll: Stuðarinn er til dæmis nýr núna og dekkin voru alltaf að detta af til að byrja með en það er komið í lag.Hörður Valur, Úlfur Ægir, Brynjar Bragi, Jón Sölvi og Ari Páll hafa fundið góða ástæðu til að vera úti og hreyfa sig. Einn fær þó stundum að hvíla lúin bein í bílnum. Hér er það Brynjar Bragi.Vísir/EyþórNú fara þeir félagar að spjalla um gang verksins sín á milli og inn í það fléttast vatnsblöðrustríð sem gekk ekkert of vel því enginn þeirra kunni að hnýta hnúta á blöðrurnar. Jón Sölvi: Svo ákváðum við að halda áfram að smíða kassabíla og erum búnir með annan. Hann er núna inni í skúr í smá viðgerð en hann er fínn. Úlfur Ægir: Já, við erum nefnilega búnir að stofna fyrirtæki sem snýst aðallega um að skutla börnum heim úr Háteigsskóla á kassabílum. Þá stýrir farþeginn og við ýtum. Túrinn kostar 50 til 100 krónur, eftir vegalengd. Við auglýsum þessa þjónustu í skólablaði Háteigsskóla. Brynjar: Kassabíll númer tvö er með sæti og skotti, við notum þetta skott fyrir yngri krakka. Stundum köllum við upp að við séum að selja ferðir og einu sinni komu tveir litlir krakkar til okkar með mömmu sinni og langaði ógeðslega mikið að fara í bíltúr. „Nei, við erum ekki að fara að kaupa kassabíl,“ sagði mamman en við útskýrðum að við værum bara að selja ferðir. Hún sagði að krakkarnir gætu ekki stýrt en við sýndum henni skottið og græddum alveg dálítið á þessu. Ferðist þið mikið í þessum bíl sjálfir? Jón Sölvi: Já, mjög mikið. Við gerðum hann upphaflega handa okkur. Leigubílahugmyndin kom seinna. Hörður Valur: Nýjasti kassabíllinn á að vera með keðju og pedölum svo enginn þurfi að ýta. Við eigum sko orðið um 1.000 kall í bauknum okkar sem við getum keypt efni fyrir.
Mest lesið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Sjá meira