Neita að svara spurningum um mál Kushner Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. maí 2017 23:30 Jared Kushner er hér hægra megin við Donald Trump, tengdapabba sinn og forseta Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Ráðgjafar og starfsmenn í starfsteymi Donald Trump, Bandaríkjaforseta, neita að svara spurningum fjölmiðla um mál Jared Kushner, tengdasonar og eins helsta ráðgjafa Donald Trump en greint hefur verið frá því að hann hafi rætt við Rússa um að koma upp leynilegri samskiptalínu milli stjórnvalda ríkjanna tveggja. BBC greinir frá. Kushner er sagður hafa átt fund með Sergey I. Kislyak, sendiherra Rússa í Bandaríkjunum, í Trump turninum í New York í byrjun desember síðastliðnum þar sem umrædd samskiptalína var rædd. Talið er að samskiptalínan sem varð aldrei að veruleika hafi verið hugmynd Kushner. Ef satt reynist er málið sérstaklega alvarlegt þar sem að Donald Trump var á þessum tíma ekki orðinn forseti Bandaríkjanna og Kushner því ekki orðinn löggildur embættismaður og talsmaður Bandaríkjanna en ólöglegt er fyrir óbreytta borgara að fara með utanríkismál landsins.Sjá einnig: Vildu koma á leynilegri samskiptalínu á milli Bandaríkjanna og RússlandsRáðgjafarnir HR McMaster og Gary Cohn eru nú staddir á Ítalíu ásamt Donald Trump, þar sem hann fundaði með leiðtogum G7 ríkjanna í dag og voru þeir spurðir út í málið á blaðamannafundi. Við það tilefni neitaði Cohn, sem er efnahagsráðgjafi í ríkisstjórn Trump, með öllu að tjá sig um málið. Þá vildi McMaster, þjóðaröryggisráðgjafi, að tjá sig um sérstök atriði í máli Kushner en segir að málið valdi honum ekki áhyggjum sé það á rökum reist. Hann segir slíkar samskiptalínur séu með öllu eðlilegar í samskiptum ríkja og þá sérstaklega í samskiptum stærri ríkja líkt og Bandaríkjanna og Rússlands.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira