Íslenski boltinn

Sjáðu glæsimark Fanndísar og hin tvö sem Blikar settu á Valskonur | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Breiðablik vann glæsilegan sigur, 3-0, á Val í stórleik þriðju umferðar Pepsi-deildar kvenna í fótbolta en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli í kvöld. Það má lesa allt um hann hérna.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði fyrsta markið á 16. mínútu eftir laglegan undirbúning Svövu Rósar Guðmundsdóttur en Svava bætti svo sjálf við öðru markinu á 65. mínútu leiksins og staðan, 2-0.

Það var svo Fanndís Friðriksdóttir sem innsiglaði flottan sigur Blika með glæsilegu marki á 74. mínútu og Valskonur gjörsigraðar í Kópavoginum.

Hér að ofan má sjá mörkin úr leiknum sem var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 HD í kvöld.

Leikurinn verður svo gerður upp í Pepsi-mörkum kvenna annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×