Eyrir Invest selur í Marel fyrir 3,5 milljarða króna Haraldur Guðmundsson skrifar 12. maí 2017 09:22 Marel er stærsta félagið á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands.
Eyrir Invest hf. hefur selt tíu milljónir hluta í Marel hf. Hlutirnir voru seldir á verðinu 348 krónur á hlut og er því um 3.480 milljónir króna. Eftir sem áður verður Eyrir stærsti hluthafi Marel en nú með 25,9 prósent af útgefnu hlutafé. „Eyrir Invest er langtímafjárfestir og hefur verið kjölfestufjárfestir í Marel síðan 2005. Marel starfar samkvæmt langtímastefnu sinni og rekstur félagsins gengur vel. Eyrir hefur mikla trú á möguleikum Marel til áframhaldandi vaxtar sem og getu félagsins til að skila góðri afkomu. Eyrir hyggst áfram vera kjölfestufjárfestir í Marel," segir í tilkynningu Eyris. „Fjárhagsstaða Eyris er sterk. Eyrir Invest er langtímafjárfestir með þá stefnu að styðja við alþjóðleg iðnfyrirtæki og sprotafyrirtæki í vexti. Eyrir keypti nýlega ráðandi hluti í Efni ehf. en félögin munu vinna saman að því að byggja upp nýjar markaðs- og söluleiðir fyrir íslensk fyrirtæki sem eru að framleiða hágæða vörur og þjónustu. Saman sjá þau fyrir sér að nýta nýjar aðferðir til að byggja upp söluleiðir gegnum netsölu og markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla. Þá hefur Eyrir Invest nýverið keypt upp allan B-flokk eigin hlutabréfa. Fyrir aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 12. maí, liggur fyrir tillaga stjórnar um frekari kaup á eigin hlutum fyrir rúmlega 1.700 milljónir króna."
Mest lesið Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Viðskipti innlent Landa stórum sölusamningi Viðskipti innlent Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Samstarf Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Viðskipti innlent Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Viðskipti innlent Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Viðskipti innlent Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Sjá meira