Lífið

Útskriftarsýningin eins og ákveðinn vorboði

Guðný Hrönn skrifar
Sigrún Inga Hrólfsdóttir hvetur alla til að leggja leið sína í Hafnarhúsið um helgina.
Sigrún Inga Hrólfsdóttir hvetur alla til að leggja leið sína í Hafnarhúsið um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Um helgina mun Sigrún Inga Hrólfsdóttir, deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, opna sýningu fyrsta árgangsins sem hún hefur fylgt í heilt ár í náminu. Hún segir að um fjölbreyttan hóp sé að ræða.

„Ég tók þátt í að opna sýninguna í fyrra, þá nýtekin við starfinu, en þessum árgangi sem nú útskrifast hef ég fylgt í heilt ár. Þetta leggst mjög vel í mig og mér finnst þau öll vera að standa sig ótrúlega vel,“ segir Sigrún.

„Þau eru að vinna í gríðarlega fjölbreytta miðla og eru að takast á við samtímann á áhugaverðan hátt, hvert með sínum hætti,“ segir Sigrún um hópinn sem sýnir á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands sem verður opnuð á laugardaginn. Alls eru 18 nemendur að útskrifast úr myndlistardeild.

Sigrún lofar sterkri sýningu með fjölbreyttum áherslum. „Í náminu fær hver og einn tækifæri til að þróa sína list á eigin forsendum og fær til þess stuðning og viðeigandi hjálp, bæði tæknilega og hugmyndafræðilega. Nemendur eru hvattir til þess að móta sína eigin listrænu sýn, með gagnrýna hugsun og innsæi að leiðarljósi. Þau eru einnig hvött til þess að kanna nýjar hugmyndir og aðferðir. Hópurinn hefur notið leiðsagnar fastráðinna kennara við deildina, Heklu Daggar Jónsdóttur, Bjarka Bragasonar, Carls Boutard og Ólafar Nordal auk fjölda gestakennara. En þessi hópur nemenda er sjálfstæður og þau sækja sér innblástur og umfjöllunarefni mjög víða.“

Spurð út í stefnur og strauma sem nemendur eru að vinna með þessa stundina segir Sigrún málverkið til að mynda vera á uppleið. „Á sýningunni er að finna vídeó, innsetningar og gjörninga og nokkrir í hópnum eru að fást við málverk. Nemendur nýta sér líka nútímatækni eins og sýndarveruleika. Það má segja að þau séu að nota alla mögulega miðla,“ útskýrir Sigrún sem segir uppsetningu sýningarinnar hafa gengið vel. „En þetta er alltaf krefjandi ferli og getur verið svolítið stressandi. Þetta er mikilvægur þáttur í náminu og þau hafa unnið hörðum höndum að uppsetningunni. Þetta er samt svo samheldinn hópur og þau eru góð í að hjálpast að og sýna hvert öðru mikla virðingu. Þó að þau séu að vinna sín verk á eigin forsendum þá styðja þau við hvert annað og það er fallegt að fylgjast með því.“

Að lokum vill Sigrún hvetja alla til að leggja leið sína í Hafnarhúsið á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands. „Þetta er náttúrulega ótrúlega stór hátíð og fjölsótt sýning, hún er líka ákveðinn vorboði. Þessi sýning hefur fest sig í sessi sem einn af mikilvægustu menningarviðburðum ársins. Það er alltaf gaman að leggja leið sína í Hafnarhúsið og sjá hvað er að gerast í samtímalist. Hvort sem maður tengist einhverjum nemanda í sýningunni eða ekki, þá er alltaf gaman að sjá kraftinn í þessum krökkum. Það er mikið stuð í myndlistinni í dag.“

„Inntökuferli stendur nú yfir fyrir árganginn sem mun hefja nám í myndlistardeild í haust. Það var mikil fjölgun á umsóknum í deildina, bæði á BA-stigi og MA-stigi. Þessi fjölgun umsókna ber vott um það að við séum að gera eitthvað rétt hérna,“ segir Sigrún sem finnur fyrir miklum myndlistaráhuga hjá fólki þessa stundina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×