Lífið

Forstjóri FoodCo selur slotið

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Jóhann Örn Þórarinsson, forstjóri FoodCo og eiginkona hans, Ásdís Björk Pétursdóttir, hafa sett einbýlishús sitt í Sigluvogi á sölu.

Húsið er hið glæsilegasta, mikið endurnýjað, vel skipulagt og 251,2 fermetrar með 35,8 fermetra sérstæðum bílskúr.

Í lýsingu á fasteignavef Vísis segir að lóðin sé öll nýlega endurnýjuð og virkilega glæsileg með afgirtum harðviðarveröndum með heitum potti og geymsluskúr. Innkeyrsla og stéttir eru nýlega hellulagðar og með hitalögnum undir.

Í húsinu er 6 herbergi, 2 baðherbergi og risloft, sem ekki er inni í fermetrafjölda eignarinnar.

Hægt er að sjá fleiri myndir og skoða þessa glæsilegu eign betur á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×