Lífið

Þekktu þingmanninn: Tæki Carole King í karókíi alþingismanna

Snærós Sindradóttir skrifar
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, hefur nú þegar lagt fram draumafrumvarpið sitt en það snýst um svokölluð borgaralaun.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, hefur nú þegar lagt fram draumafrumvarpið sitt en það snýst um svokölluð borgaralaun. vísir/ernir
Fædd: 11. júlí 1979

Börn: 6 ára gömul stúlka

Foreldrar: Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir (nálarstungu- og jurtalæknir) og Erik Júlíus Mogensen (tónsmiður)

Menntun: Engin formleg skólaganga. Er mestmegnis sjálfmenntuð.

Áhugamál: Ljóðagerð, tónlist, myndlist, dans, lestur.

Ég hef starfað um víðan völl en lengst í ferðaþjónustunni. Þar hef ég unnið sem deildarstjóri hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og svo ferðahönnuður hjá Iceland Encounter.

Hver hefur þinn ferill í stjórnmálum verið? Hvar byrjaði þetta allt? Ég hef alla tíð haft áhuga á heiminum í kring um mig og þá sérstaklega fólkinu og undirliggjandi hugmyndafræði mismunandi samfélagsgerða. Á mínum yngri árum notaði ég mikið listir til að tjá hugmyndir mínar og tilfinningar. Eftir hrun uppgötvaði ég að upplifun mín á því samfélagi sem ég bjó í var á skjön við raunveruleikann.

Teppinu hafði verið kippt undan mér og mér líkaði ekki það sem ég sá og þá fann ég fyrir lönguninni til að taka þátt og láta eitthvað gott af mér leiða. Ég trúði því að við gætum byggt upp sanngjarnara og fallegra samfélag á Íslandi og ég trúi því enn.

Hvað kom til að þig langaði að setjast á Alþingi? Sástu það fyrir þér fyrir nokkrum árum? Ekki fyrir mitt litla líf hefði mér nokkurn tíma dottið í hug að ég myndi taka þátt í stjórnmálahreyfingu og hvað þá að ég yrði kosin á þing. Ég kaus í fyrsta skiptið árið 2009 og þá var ég þrítug. Stjórnmál voru ekki eitthvað sem mér fannst mig varða. Þegar ég byrjaði að taka þátt í því að stofna Pírataflokkinn árið 2012 þá var það löngun mín til að gera eitthvað sem skipti einhverju máli sem dreif mig áfram. Ég hafði tröllatrú á því fólki sem ég hafði kynnst innan Pírata og þeim grunngildum sem við höfðum sett okkur. Mér fannst það ekki skipta máli hvort ég kæmist á þing eða ekki, mér fannst skipta mestu máli að Píratar fengju rödd á þingi og ég gaf mig alla í að gera það að veruleika.

Hvað úr reynslubankanum nýtist þér í starfinu? Það er samansafn af svo mörgu í lífinu. Allt ferðalagið hingað og sá lærdómur sem ég hef aflað mér á leiðinni. Það er erfitt að taka eitthvað eitt út fyrir sviga en það sem mér dettur í hug í fljótu bragði er að mamma sagði mér alltaf að ég væri svo klár og skemmtileg. Hún sagði það svo oft að undir lokin þá trúði ég henni. Ég held að þetta hafi gert mér kleift að gera ótrúlegustu hluti.

Sérðu fyrir þér að gera stjórnmál að ævistarfi? Nei. Stjórnmál eiga ekki að vera ævistarf. Það á ekki að vera inni í myndinni. Það er allt of auðvelt að missa sjónar á því sem skiptir máli. Vald spillir og eina leiðin til að koma í veg fyrir það er að dreifa valdinu.

Hvaða frumvarp iðar þú í skinninu að leggja fram? Ég er búin að leggja það fram! Ekki samt frumvarp en þingsályktun um skilyrðislausa grunnframfærslu eða það sem kallast borgaralaun. Borgaralaunatillagan snýst um að skipa starfshóp til að kortleggja leiðir til að tryggja öllum borgurum landsins skilyrðislausa grunnframfærslu með það að markmiði að styrkja efnahagsleg og félagsleg réttindi fólks og útrýma fátækt.

Hvar ólstu manninn og hvernig var æska þín? Ég ólst upp úti um allt. Aðallega í Bandaríkjunum og Bretlandi en svo kom ég heim í 10. bekk. Ég stoppaði samt ekki lengi og var farin á flakk aftur um 19 ára aldur en flutti svo alfarið heim um 25 ára og hef verið hér síðan. Æska mín var erfið á köflum þar sem ég var alltaf utanaðkomandi og þurfti oft að líða fyrir það, bæði úti og svo heima. En eins og með allt erfiði þá fylgir dýrmætur lærdómur og ég lærði að elska fólkið sem var mér verst vegna þess að ég skynjaði þjáningu þess jafnt við mína eigin. Með aldrinum lærði ég líka að vera óhrædd við að fara út fyrir þægindarammann minn. Ég lærði að láta ekkert stoppa mig.

Hvernig nærir þú þig andlega? Ég mála, skrifa ljóð eða sest niður með dóttur minni og spjalla við hana um daginn og veginn. Hennar sýn og skilningur á heiminum veitir mér endalausa gleði.

Ég borða hollan mat og iðka jóga þegar að ég man eftir því, sem mætti vera mun oftar.

Hver er fallegasti staður sem þú hefur komið á? Þeir eru svo margir. Ég bjó á Ítalíu í ár og hef ferðast um Balkanskagann og Taíland. Það er erfitt að gera upp á milli svo fallegra staða. Ég held samt svei mér þá að ég hafi aldrei litið aðra eins fegurð eins og þegar ég keyrði frá Kirkjubæjarklaustri að Jökulsárlóni.

Uppáhaldsborg utan landsteinanna? Það er þá annaðhvort Berlín eða Sarajevó.

Hvert langar þig mest að ferðast? Til Suður-Ameríku og Indlands.

Hvernig verðu helgarfríum? Þær helgar sem ég er með dóttur minni eru að mestu helgaðar henni. Hún fær að ráða. Aðrar helgar er ég mestmegnis að vinna eða lesa eða kannski að horfa á einhverja góða þáttaröð.

Hvaða hljómsveit eða tónlistarmaður er mest spilaður á Spotify aðganginum þínum? Ég er búin að vera að hlusta slatta á Little Dragon, Moderat og Samaris.

Hvaða lag tækirðu í karókíi alþingismanna? Líklegast eitthvað með Carole King eða Janis Ian.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×