Handbolti

Aron og félagar þurfa að fara í oddaleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron hvetur sína menn í leiknum í dag.
Aron hvetur sína menn í leiknum í dag. vísir/getty
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í Aalborg þurfa að mæta Bjerringbro/Silkeborg í oddaleik um sæti í úrslitum um danska meistaratitilinn í handbolta.

Aalborg vann fyrsta leikinn á heimavelli, 28-26, en Bjerringbro/Silkeborg svaraði fyrir sig með sigri, 29-27, í öðrum leik liðanna í dag.

Íslendingarnir í liði Aalborg skiluðu samtals fimm mörkum í leiknum. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk og Stefán Rafn Sigurmannsson tvö. Arnór Atlason komst ekki á blað.

Oddaleikur Aalborg og Bjerringbro/Silkeborg fer fram á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×