Íslenski boltinn

Sigurður áfram með Breiðablik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Breiðabliks og Stjörnunnar í gær.
Úr leik Breiðabliks og Stjörnunnar í gær. Vísir/Anton
Sigurður Víðisson verður áfram þjálfari Breiðabliks næstu tvo leiki hið minnsta, en þetta kemur fram á stuðningsmannavef Breiðabliks, blikar.is.

Sigurður var aðstoðarþjálfari Arnars Grétarssonar sem var rekinn í síðustu viku. Breiðablik tapaði í gær fyrir Stjörnunni á heimavelli, 3-1, undir stjórn Sigurðar.

Úlfar Hinriksson og Páll Einarsson verða Sigurði áfram til aðstoðar en næsti leikur liðsins verður gegn Fylki á miðvikudagskvöld í 32-liða úrslitum bikarsins.

Breiðablik leikur svo gegn Víkingi Reykjavík á sunnudag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×