Innlent

Með okkar augum hlýtur Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar

Atli Ísleifsson skrifar
Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag .
Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag . Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag dagskrárgerðarfólki og hugmyndasmiðum sjónvarpsþáttanna Með okkar augum Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2017 á mannréttindadegi Reykjavikurborgar.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að þáttaröðin hafi verið sýnd á RÚV síðastliðin sex ár og stuðlað að vitundarvakningu um stöðu fólks með þroskahömlun, getu þess, skoðanir og langanir.

„Með umfjöllun sinni hefur þáttastjórnendum tekist að auka skilning á réttindum fatlaðs fólks. Þau Andri Freyr Hilmarsson, Eiður Sigurðsson, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Skúli Steinar Pétursson, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Elín Sveinsdóttir, upptökustjóri veittu verðlaununum viðtöku.

Borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að dagskrárgerðarfólkið sem stæði að gerð þáttanna verðskuldaði verðlaunin því með umfjöllun sinni hafi þau aukið skilning á réttindum fatlaðs fólks. Verðlaunin að þessu sinni eru 600 þúsund krónur.“

Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. Markmiðið með mannréttindadeginum er að vekja athygli á þeim málum sem varða mannréttindi borgarbúa og á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Tjörnin hlýtur Hvatningarverðlaun mannréttindaráðs

Elín Oddný Sigurðardóttir, formaður mannréttindaráðs afhenti forstöðumönnum Tjarnarinnar frístundamiðstöðvar hvatningarverðlaun mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, en verðlaunin eru nú veitt í fyrsta sinn.

„Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir þróunar- og nýbreytni í starfi einstaklinga, borgarstofnana og fyrirtækja á sviði mannréttindamála.  Tjörnin hlýtur verðlaunin fyrir að standa að réttindagöngu barna.Réttindaganga barna er farin árlega í tilefni af barnaréttindaviku allra frístundaheimila í Hlíðum, Miðborg og Vesturbæ. Hún er lokahnykkur vikunnar þar sem lögð er áhersla á fræðslu um réttindi barna, Barnasáttmálann, lýðræðisleg vinnubrögð og að kenna börnunum að þekkja mun á réttindum og forréttindum. Gangan gefur börnum tækifæri til að fagna réttindum sínum og er verkefnið liður í því að styrkja rödd barna og gera þau meðvituð um réttindi sín og annarra,“ segir í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×