Innlent

Gleði braust út þegar eigandi tapaðs hálsmens fannst

Jakob Bjarnar skrifar
Foreldar Ashley Fusco fórust í bílslysi og hálsmenið er til minningar um þau, gert úr fingraförum þeirra.
Foreldar Ashley Fusco fórust í bílslysi og hálsmenið er til minningar um þau, gert úr fingraförum þeirra.
„Þú fannst mig,“ skrifar Ashley Fusco. Og bætir við fjórum upphrópunarmerkjum. „Ég get ekki þakkað þér nógsamlega. Ég missti báða foreldra mína í bílslysi þegar ég var í háskóla og hálsmenið var til minningar um þau,“ heldur Ashley Fusco áfram. Hálsmenið er byggt á fingraförum látinna foreldra hennar.

Mikil gleði braust út á Facebook þegar leit að eiganda hálsmens bar árangur.

Fyrir tæpum sólarhring birti Hera Björk Þormóðsdóttir tvær myndir af hálsmeni þar sem meðal annars má sjá áletrunina „mom“ og „dad“. Og svohljóðandi skilaboð fylgdu:

„Hæhæ, ég er að vinna í túristabúð í Reykjavík á Laugaveginum sem heitir I don't speak Icelandic. Við fundum þetta hálsmen í búðinni og virðist þetta vera kærkominn gripur. Þess vegna langar mig að reyna á mátt facebook og aðra samfélagsmiðla og reyna að finna eigandann. Endilega deilið þessu!“

Ekki stóð á viðtökunum, skeytið fór um netheima á ógnarhraða og tæplega tvö þúsund manns deildu myndinni. Og eigandinn kom í leitirnar. Ashley Fusco, frá Pittsburg, Pennsylvaniu í Bandaríkjunum, kann sér ekki læti, að hafa endurheimt þennan persónulega grip og netið sýndi að það þekkir engin landamæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×