Innlent

Selt verður inn í Skrúð

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Gerð lystigarðsins Skrúðs hófst 1909. 
Fréttablaðið/Anton Brink
Gerð lystigarðsins Skrúðs hófst 1909. Fréttablaðið/Anton Brink
Hefja á töku aðgangseyris í lystigarðinn Skrúð í Dýrafirði í sumar. Framkvæmdasjóður garðsins segir þetta nauðsynlegt vegna þess að ekkert framlag hafi fengist frá ríkinu til Skrúðs á síðustu tveimur árum.

„Það er því nauðsynlegt að tryggja lágmarks þjónustu og uppbyggingu við Skrúð og ekki neitt í augsýn sem gæti tryggt rekstur hans, annað en gjaldtaka við garðinn,“ segir í bréfi þar sem óskað var heimildar Ísafjarðarbæjar fyrir því að innheimta  aðgangseyri að Skrúði.

Rætt er um að upphæðin verði 300 krónur og að gjaldtakan hefjist 17. júní. „Til að bregðast við síaukinni umferð ferðamanna um Skrúð er einnig nauðsynlegt að koma upp bráðabirgða­salernisaðstöðu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×