Íslenski boltinn

Fram og Selfoss með sigra í fyrstu umferð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik Leiknis og Keflavíkur í kvöld.
Úr leik Leiknis og Keflavíkur í kvöld. vísir/anton
Inkasso-deildin hófst í kvöld hófst í kvöld með þremur leikjum.

Fram lagði HK í Kórnum, 1-2, með mörkum frá Ivan Bubalo og Helga Guðjónssyni. Árni Arnarson skoraði fyrir HK á lokamínútu leiksins.

Athygli vakti að þjálfari HK, Jóhannes Karl Guðjónsson, reif fram skóna og spilaði síðari hálfleikinn. Það dugði þó ekki til.

Í Breiðholtinu gerðu Leiknir og Keflavík 1-1 jafntefli. Jeppe Hansen kom Keflavík yfir með marki úr vítaspyrnu á 15. mínútu en Kolbeinn Kárason jafnaði fyrir Leikni 20 mínútum fyrir leikslok.

Á Selfossi unnu heimamenn 1-0 sigur á ÍR með marki Ivan Martinez Gutierrez.

Upplýsingar um markaskorara: fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×