Körfubolti

Brynjar Þór: Höfum gert þetta margoft áður

Smári Jökull Jónsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson skoraði 18 stig fyrir KR í kvöld.
Brynjar Þór Björnsson skoraði 18 stig fyrir KR í kvöld. vísir/ernir
Brynjar Þór Björnsson setti niður mikilvægar þriggja stiga körfur og skoraði 18 stig í ótrúlegum sigri KR gegn Grindavík í kvöld. KR getur tryggt sér titilinn á heimavelli á mánudag.

„Sanngjarnt eða ekki, við tökum sigurinn. Grindvíkingarnir spiluðu frábærlega og Lewis Clinch var auðvitað frábær og Ólafur Ólafsson líka. Þeir börðust fyrir öllu og létu okkar hafa fyrir öllum fráköstum. Þeir eru gríðarlega sterkir og ég tek hattinn ofan fyrir þeim en ég tek sigurinn allan daginn,“ sagði Brynjar Þór Björnsson í samtali við Vísi strax að leik loknum.

Grindvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 20-4 í upphafi. KR kom hins vegar til baka áður en fyrsti leikhluti var á enda en voru að elta nær allan leikinn.

„Ég held að við höfum kannski verið værukærir, vorum yfir og þú veist að þú átt heimavöllinn inni. Ég fann það sjálfur að ég var svona aðeins rólegri. Þeir byrjuðu á stórskotasýningu í byrjun en þristarnir sem þeir voru að setja voru svakalegir og það datt allt með þeim.“

„Mér fannst við tækla það vel og við brotnuðum ekki heldur drógum djúpt andann og fundum hvað virkaði. Við komum okkur aftur inn í leikinn og síðan var þetta í lokin ákveðin heppni. Það þurfa margir hlutir að gerast þegar þú ert 10 stigum undir, og það gerðist í kvöld,“ bætti Brynjar við en Philip Alawoya skoraði ótrúlega sigurkörfu þegar fimm sekúndur voru eftir af leiknum.

KR-liðið er hokið af reynslu og sýndi það og sannaði í kvöld að það skiptir máli í leikjum eins og þeim í kvöld.

„Þetta er karakterinn í liðinu og við höfum gert þetta margoft áður að koma til baka í fjórða leikhluta. Þegar við stígum aðeins upp og förum að spila betri vörn þá eiga lið erfitt með að skora. Þeir fóru aðeins frá sínu og hættu að hitta skotunum. Við stoppuðum sóknarfráköstin í lokin sem var lykilatriði.“

KR getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á mánudaginn þegar liðin mætast í þriðja sinn í Vesturbænum. Þeir voru einmitt í sömu stöðu í fyrra en töpuðu þá þriðja leiknum gegn Haukum.

„Ég man í fyrra þá vorum við 2-0 yfir og mættum frekar værukærir. Það er hrikalega gaman að spila þegar bikarinn er kominn í hús og þú veist að ef þú vinnur þá lyftir þú bikarnum. Af reynslunni að dæma munum við mæta aðeins klárari en í fyrra og sjá til þess að bikarinn fari á loft á mánudaginn,“ sagði Brynjar Þór að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×