Stökk yfir í aftursætið og þvertók fyrir að hafa keyrt Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2017 07:33 Minnst tuttugu ökumenn voru handteknir í nótt og flestir þeirra eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Vísir/Getty
Lögreglan stöðvaði fjölmarga ökumenn um allt höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi, í nótt og í morgun sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Einn slíkur sinnti ekki stöðvunarmerkjum við Grettisgötu í nótt. Hann stöðvaði þó á endanum og færði sig í aftursæti bílsins. Þá neitaði hann fyrir að hefa ekið. Ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur og að aka án ökuréttinda og mun hann hafa gert það ítrekað, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Annar ökumaður sem stöðvaður var við Stakkahraun er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna, brot á vopnalögum og akstur án réttinda, sem hann mun aldrei hafa öðlast. Nú skömmu eftir klukkan sex var maður handtekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, en hann er einnig grunaður um að hafa ekið farþegum gegn gjaldi án þess að hafa tilskilin leyfi til farþegaflutninga. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við Dalbraut í nótt þar sem fartölvu var meðal annars stolið. Tveir ungir menn voru handteknir og eru grunaðir um að hafa framið brotið, en annar þeirra var einnig með ætluð fíkniefni á sér og er einnig grunaður um sölu þeirra. Þar að auki barst lögreglunni tilkynningar um þjófnað á skemmtistað við Austurstræti og líkamsárás við Hafnarstræti. Lögreglan handtók einnig mann í Breiðholti sem grunaður er um heimilisofbeldi.
Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Sjá meira