Enski boltinn

Big Ben gerði gömlu félögum grikk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Benteke er kominn með 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Benteke er kominn með 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur. vísir/getty
Christian Benteke skoraði bæði mörk Crystal Palace þegar liðið vann 1-2 útisigur á Liverpool, hans gamla liði, í gær. Palace hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið sex af síðustu átta leikjum sínum. Og strákarnir hans Sams Allardyce eru komnir upp í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Ótrúlegur viðsnúningur hjá Palace sem var í tómu rugli undir lok stjórnartíðar Alans Pardew.

Benteke var aðeins eitt tímabil í herbúðum Liverpool og þrátt fyrir að hafa ekki náð að sýna sínar bestu hliðar skoraði hann níu mörk í 29 deildarleikjum. Það var ekki nóg til að sannfæra Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, sem seldi hann til Palace á tæpar 30 milljónir punda.

Belginn stóri og stæðilegi hefur átt fínt tímabil með Palace og er kominn með 14 mörk í vetur. Benteke hefur alls skorað 65 mörk í 149 leikjum í ensku úrvalsdeildinni sem verður að teljast góð tölfræði, sérstaklega í ljósi þess að hann lék með Aston Villa fyrstu þrjú tímabil sín í deildinni.

Stóru málin eftir helgina í enska boltanum

Stærstu úrslitin

Þrátt fyrir að vera manni færri í 65 mínútur vann Hull 2-0 sigur á Watford. Mikilvæg þrjú stig hjá Tígrunum, sérstaklega í ljósi þess að Swansea vann Stoke á sama tíma. Þetta var sjötti deildarsigur Hull undir stjórn Marcos Silva.

Hvað kom á óvart?

Að Everton tókst ekki að skora gegn West Ham sem er með eina lélegustu vörn deildarinnar. Everton hafði skorað 16 mörk í sex leikjum fyrir leikinn á Lundúnaleikvanginum á laugardaginn en tókst ekki að finna netmöskvana gegn Hömrunum.

Mestu vonbrigðin

Liverpool hefði farið langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti með sigri á Crystal Palace á heimvelli. Liverpool komst yfir en Christian Benteke, fyrrverandi leikmaður liðsins, skoraði svo tvívegis fyrir Palace og tryggði liðinu sigurinn. Lærisveinar Jürgens Klopp eru nú bara þremur stigum á undan Manchester United sem á tvo leiki til góða á Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×