Körfubolti

Logi áfram í Ljónagryfjunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Logi og Frirðik Ragnarsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, við undirskriftina.
Logi og Frirðik Ragnarsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, við undirskriftina. mynd/umfn.is
Skórnir eru langt frá því að fara upp í hillu hjá Njarðvíkingnum síunga, Loga Gunnarssyni.

Logi er búinn að skrifa undir nýjan samning við Njarðvík til ársins 2019.

Þessi magnaði leikmaður er orðinn 36 ára gamall en það hefur lítið hægst á honum.

Hann var með 20 stig og 3,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur og sem fyrr í algjöru lykihlutverki hjá Njarðvík.

Körfuknattleiksunnendur hljóta að fagna því að fá að sjá meira af Loga Gunnarssyni næstu árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×