Handbolti

Bjarki með fjögur er Füchse Berlin flaug inn í undanúrslitin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már hefur átt gott tímabil með Füchse Berlin.
Bjarki Már hefur átt gott tímabil með Füchse Berlin. vísir/afp
Bjarki Már Elísson og félagar í Füchse Berlin eru komnir áfram í undanúrslit EHF-bikarsins eftir 28-22 sigur á Tatabanya frá Ungverjalandi í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum í dag.

Berlínarrefirnir unnu fyrri leikinn í Ungverjalandi 25-30 og einvígið 58-47 samanlagt.

Bjarki Már skoraði fjögur mörk úr sex skotum fyrir Füchse Berlin sem mætir annað hvort Melsungen frá Þýskalandi eða Saint Raphael frá Frakklandi í undanúrslitunum.

Þýski landsliðsmaðurinn Steffen Fäth var markahæstur í liði Berlínarrefanna í dag með sex mörk. Hans Lindberg kom næstur með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×