Draumur um bárujárnshús Íslandsbanki kynnir 10. apríl 2017 13:15 Íris Anna og Símon Örn með tvíburana sína.
Símon Örn Birgisson dreymdi alltaf um að kaupa lítið bárujárnshús, enda ólst hann sjálfur upp í þannig húsi á Urðarstígnum í Hafnarfirði. Hann festi síðan kaup á bárujárnshúsi á Merkurgötu, en þegar hann var nýfluttur kynntist hann Írisi Önnu. Stuttu seinna var von á tvíburum og í dag er litla bárujárnshúsið orðið of lítið fyrir fjölskylduna og þau eru að flytja í nýja íbúð.Tvö á leiðinni „Mig hefur alltaf dreymt um að kaupa lítið bárujárnshús, ég ólst upp í þannig húsi á Urðarstígnum hérna rétt hjá,“ segir Símon Örn. Húsið sem hann keypti á Merkurgötu í Hafnarfirði er eitt af elstu húsunum í vesturbæ Hafnarfjarðar og ákvað Símon Örn að ef að hann myndi eignast börn sjálfur væri gaman að leyfa þeim að upplifa sama og hann. „Stuttu eftir að ég flyt inn kynnist ég Írisi Önnu,“ segir Símon Örn. Íris Anna varð síðan ófrísk og eftir fyrsta sónarinn var sagt við þau; „hér er bara nóg að gerast, tvö á leiðinni,“ segir Íris Anna. Fjölskyldan lagðist á eitt Símon Örn vildi selja húsið, en Íris Anna hvatti hann til að fara í framkvæmdir. „Þegar maður fer í svona framkvæmdir á húsi þá er það eitthvað sem maður gerir ekkert einn,“ segir Símon Örn. „Öll fjölskyldan kemur inn í þetta, vinirnir, frændi minn smíðaði stiga með mér og pabbi kom á hverju kvöldi.“ Framkvæmdir voru í gangi alveg fram að fæðingu tvíburanna og parið flutti inn beint af fæðingardeildinni. Þau segja að maður þurfi að vera praktískur og horfa raunsætt á hlutina. „Maður þarf að skoða eyðsluna, byrja á því, hvað maður þarf raunverulega,“ segir Íris Anna. „Langar mig í íbúð þá verð ég að sleppa þessu.“Nýtti sér viðbótarlán Þau kaupa allt notað, eins og fyrir strákana og segja að maður þurfi svolítið að breyta um lífsstíl. „Fyrir venjulegt fólk er aldrei eitthvað auðvelt að kaupa íbúð eða kaupa sína fyrstu fasteign.“ Símon Örn nýtti sér 1,5 milljón viðbótarlán sem bankinn hans bauð upp á til þeirra sem voru að kaupa sína fyrstu eign „og það var brúin sem ég þurfti yfir í að geta keypt þetta.“Munu sakna bárujárnshússins Húsið varð þó fljótt of lítið fyrir tvennt af öllu og hefur fjölskyldan fundið fína íbúð í norðurbæ Hafnarfjarðar. „Það var auðvitað söknuður og ákveðinn tregi að skilja við þetta hús, allar þessar minningar, hvernig við kynntust hérna,“ segir Símon Örn. „Tvíburar og Volvo station. Við tókum soldið pakkann allan í einu.“Þetta var saga Símons og Írisar, hvernig viltu að þín saga verði? Pantaðu ráðgjöf og komdu til okkar og gerðu þitt plan.Greinin er kostuð af Íslandsbanka en hún er hluti af Það er hægt, verkefni bankans um fyrstu kaup á fasteign.
Það er hægt Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira