Íslenski boltinn

Thomsen örlagavaldurinn gegn Íslandsmeisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tobias Thomsen hefur skorað tvö mörk í jafn mörgum leikjum fyrir KR.
Tobias Thomsen hefur skorað tvö mörk í jafn mörgum leikjum fyrir KR. vísir
Danski framherjinn Tobias Thomsen fer vel af stað í búningi KR en í dag tryggði hann Vesturbæjarliðinu sigur á FH, 2-1, í undanúrslitum Lengjubikarsins.

Thomsen skoraði í 4-1 sigri á Þór Ak. í 8-liða úrslitunum og hann endurtók leikinn gegn Íslandsmeisturunum í dag.

Óskar Örn Hauksson kom KR yfir á 32. mínútu þegar hann fylgdi á eftir eigin skoti sem Gunnar Nielsen í marki FH varði.

Sjö mínútum síðar jafnaði Kristján Flóki Finnbogason metin með frábæru skoti fyrir utan teig. Kristján Flóki hefur verið sjóðheitur að undanförnu en hann hefur skorað fjögur mörk í síðustu þremur leikjum FH.

Það var svo Thomsen sem skoraði sigurmark KR á 51. mínútu eftir mistök í vörn FH. Guðmundur Karl Guðmundsson var hársbreidd frá því að jafna metin í uppbótartíma en skot hans fór í stöng KR-marksins. Lokatölur því 2-1, KR í vil.

KR mætir annað hvort KA eða Grindavík í úrslitaleiknum á annan í páskum.


Tengdar fréttir

KR í undanúrslit Lengjubikarsins

KR vann þægilegan sigur á Þór, 4-1, í 8-liða úrslita Lengjubikarsins í knattspyrnu í dag en leikurinn fór fram í Frostaskjólinu vestur í bær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×