Körfubolti

Spáðu hárrétt um undanúrslitin en nú eru þær ósammála um lokaúrslitin sem hefjast á mánudaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaryn Ellenberg hjá Snæfelli skoraði 28,7 stig að meðaltali í sigurleikjunum þremur á móti Keflavík í vetur en Keflavíkurkonur héldu henni í 14 stigum þegar þær unnu síðasta leik liðanna í Stykkishólmi.
Aaryn Ellenberg hjá Snæfelli skoraði 28,7 stig að meðaltali í sigurleikjunum þremur á móti Keflavík í vetur en Keflavíkurkonur héldu henni í 14 stigum þegar þær unnu síðasta leik liðanna í Stykkishólmi. vísir/daníel þór
Fréttablaðið fékk sjö leikmenn í Dominos´deild kvenna til að spá fyrir um undanúrslitaeinvígi úrslitakeppni kvenna og allar spáðu þær Snæfelli og Keflavík í lokaúrslitin sem varð svo raunin.

Keflavík tryggði sér sætið með sextán stiga sigri á Skallagrími, 80-64, í oddaleik í Keflavík á skírdag en Snæfell sópaði Stjörnunni út í hinu einvíginu. Lokaúrslitin hefjast á annan í páskum og er fyrsti leikurinn á heimavelli deildarmeistara Snæfells í Stykkishólmi.

Af þessum sjö sem spáðu fyrir Fréttablaðið voru tvær sem fengu tíu fyrir spána sína en það voru Valsararnir Guðbjörg Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir. Báðar spáðu þær 3-0 fyrir Snæfelli og 3-2 fyrir Keflavík.

Nú vandast hins vegar málið ef menn halda að þær séu bestu spámennirnir því Guðbjörg og Hallveig eru ósammála um hver lokaúrslitin verða. Guðbjörg spáir Keflavík Íslandsmeistaratitlinum eftir oddaleik en Hallveigu finnst líklegra að Snæfell vinni titilinn í oddaleik.

Snæfell á samkvæmt spáhóp Fréttablaðsins meiri möguleika á að vinna fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð en að Keflavík bæti Íslandsmeistaratitlinum við bikarinn sem Keflavíkurstelpurnar unnu í febrúar. Fimm spá Snæfelli sigri en tvær hafa meiri trú á hinu unga liði Keflavíkur.

Snæfell getur orðið fyrsta kvennaliðið til að vinna Íslandsmeistaratitilinn fjögur ár í röð síðan úrslitakeppnin var tekin upp 1993.

Snæfell vann þrjá fyrstu leiki sína á móti Keflavík í vetur og hafði þá unnið 10 af 11 síðustu leikjum liðanna á Íslandsmótinu. Keflavíkurkonur gerðu hins vegar góða ferð í Stykkishólm í lokaumferðinni, unnu þá þrettán stiga sigur, 72-59. Nú er bara að sjá hvort þeim hafi tekist að drepa Snæfellsgrýluna sína með þeim sigri, en eitt er víst að það stefnir í spennandi og skemmtilegt úrslitaeinvígi milli tveggja frábærra liða.

Úrslitaserían í fyrra fór alla leið í oddaleik og það væri gaman að fá svipaða körfuboltaveislu í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×