Fótbolti

Kolo Touré talaði af sér: Er aðdáandi Whitney Houston

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
vísir/getty
Kolo Touré, leikmaður Skotlandsmeistara Celtic, gaf óvænta innsýn inn í plötuskápinn sinn á blaðamannafundi um helgina.

Touré var þá spurður hvaða stuðningamannasöngur hjá þeim félögum sem hann hefur spilað fyrir væri í uppáhaldi hjá honum.

Fílbeinsstrendingurinn misskildi spurninguna aðeins og hélt að spurningin snerist um uppáhalds tónlistina sína.

„Ekki hlæja en ég fíla Whitney Houston,“ sagði Touré sem var fljótlega leiðréttur við mikinn hlátur viðstaddra.

Við vitum þá allavega hvað leynist í plötuskápnum hjá Touré sem kom til Celtic frá Liverpool síðasta sumar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×