Fótbolti

Matthías og félagar með fullt hús

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Matthías lék síðustu 24 mínútur leiksins.
Matthías lék síðustu 24 mínútur leiksins. vísir/getty
Matthías Vilhjálmsson og félagar í Rosenborg eru með fullt hús stiga eftir fyrstu fjórar umferðirnar í norsku úrvalsdeildinni.

Norsku meistararnir sóttu Viking heim í kvöld og unnu 0-1 sigur, þökk sé marki Pål André Helland á 8. mínútu. Matthías kom inn á sem varamaður á 66. mínútu.

Rosenborg er eina lið deildarinnar sem hefur unnið alla fjóra leiki sína á tímabilinu.

Aron Sigurðarson lék allan leikinn þegar Tromsö laut í lægra haldi fyrir Odds Ballklubb á útivelli, 1-0.

Þetta var fyrsta tap Arons og félaga á tímabilinu en þeir sitja í 6. sæti deildarinnar með sjö stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×