Enski boltinn

Wenger: Eigum enn möguleika á Meistaradeildarsæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wenger er undir mikilli pressu en gat brosað í kvöld.
Wenger er undir mikilli pressu en gat brosað í kvöld. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var að vonum sáttur með sigurinn á Middlesbrough í kvöld.

„Við brugðumst vel við. Þetta var ekki fullkomið en vinnuframlagið og einbeitingin voru til staðar. Í stöðunni 1-1 fundum við leið til vinna,“ sagði Wenger eftir leikinn sem Arsenal vann 1-2 með mörkum frá Alexis Sánchez og Mesut Özil.

„Þetta var stórt próf. Middlesbrough gaf allt. Þetta var einn af þeirra síðustu möguleikum á að halda sér í deildinni.“

Arsenal er nú sjö stigum frá Meistaradeildarsæti. Skytturnar eiga hins vegar leik og leiki til góða á liðin í kring.

„Tölfræðilega eigum við enn möguleika. Við vissum að við urðum að vinna. Núna kemur smá hvíld og bikarleikur áður en deildin tekur aftur við,“ sagði Wenger.


Tengdar fréttir

Kærkominn sigur Arsenal

Arsenal lyfti sér upp í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-2 útisigri á Middlesbrough á Riverside í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×