Innlent

Átta mánuðir frá slysinu al­var­lega og neyðar­út­gangs­pallurinn ó­snertur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svona var flóttaleiðin í morgun, miðvikudaginn 19. apríl.
Svona var flóttaleiðin í morgun, miðvikudaginn 19. apríl. Vísir/Magnús Hlynur
Engar lagfæringar hafa verið gerðar á neyðarútgangspalli á 3. hæð Austurvegar 38 á Selfossi síðan þrítug kona féll þar til jarðar með þeim afleiðingum að hún lamaðist frá brjósti og niður. Forstjóri Vinnueftirlits ríkisins segir enga atvinnustarfsemi heimila í húsnæðinu þar til búið sé að laga pallinn.

Það var mánudagskvöldið 22. ágúst í fyrra sem slysið varð. Fallið er hátt af þriðju hæðinni eða um sex metrar. Þótti kraftaverki líkast að konan, sem var verktaki og sinnti pistlaskrifum hjá Sunnlenska fréttablaðinu, lifði fallið af.

Austurvegur 38. Aðeins er starfsemi á jarðhæðinni þessa dagana.Vísir/Magnús Hlynur

Sjálfstæðismenn seldu

Selfyssingar hafa margir hverjir undrast eð ekkert hafi verið gert í málunum og neyðarútgangurinn standi, nú átta mánuðum eftir slysið, óbreyttur. 

„Það halda allir að það hafi ekkert verið gert,“ segir Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins. Óbreytt ástand blasi við fólki sem virði húsið fyrir sér að utan. Það sé auðvitað hundleiðinlegt. 

Málið hafi aftur á móti verið á borði vinnueftirlitsins þar sem það var rannsakað. Niðurstaðan var skýr, þess efnis að húseigandinn yrði að ráðast í lagfæringar ef atvinnustarfsemi ætti að fá að fara fram í húsnæðinu. 

Vísir/Magnús Hlynur
Hæðin var í eigu Sjálfstæðisfélagsins Óðins en í útleigu hjá Sunnlenska fréttablaðinu. Síðan slysið varð er Sunnlenska fréttablaðið flutt og tiltölulega nýlega var hæðin keypt af Austur 52 ehf. Hæðin hefur nú verið auð í marga mánuði.

Ekki liggur fyrir hvaða starfsemi muni fara fram í húsinu þótt líklegt megi telja að þar verði gerðar íbúðir ef marka má viðskiptasögu nýs eiganda.

Eyjólfur segir þó ljóst að engin starfsemi muni fara fram á hæðinni fyrr en lagfærðingar hafi verið gerðar. 

„Við höfum bannað atvinnustarfsemi,“ segir Eyjólfur.

Verði vart við eitthvert skemmtanahald á hæðinni sé það hlutverk Eldvarnaeftirlitsins að stöðva það. 


Tengdur þekktustu „útfararstjórum“ landsins

Nýr eigandi að húsnæðinu er Austur 52 ehf sem er í eigu Sigurðar H. Garðarssonar samkvæmt upplýsingum úr gagnagrunni Credit Info. 

Sigurður hefur verið töluvert í fréttum undanfarin ár með annars í tengslum við útfararstjóra, aðila sem leppa einkahlutafélög á leiðinni í þrot og koma þannig fyrri eigendum félaganna frá því að nafn verði tengt við gjaldþrotið.

Sjá einnig: Kennitöluflakk er þjóðaríþrótt Íslendinga

Fjallað var ítarlega um fyrirbærið útfararstjóra í fréttaskýringaþættinum Brestum á Stöð 2 fyrir tveimur árum. Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, ræddi meðal annars um dæmi sem hann hafði heyrt af kennitöluflakki sem sjá má að neðan.

Samkvæmt heimildum Vísis hyggst Sigurður einnig kaupa 2. hæð hússins en til stendur að breyta húsnæðinu, sem er skráð sem skrifstofu- og atvinnuhúsnæði, í íbúðarhúsnæði. 

Sigurður var til umfjöllunar í Stundinni í febrúar vegna deilna við íbúa Reykjanesbæjar um byggingu þriggja hæða blokkar með 77 íbúðum. Á reitnum stendur nú skyndibitastaðurinn Hlöllabátar en Sigurður er einn eigenda skyndibitastaðarins.


Tengdar fréttir

Hlöllabátum fórnað til að rýma fyrir Zimsenhúsinu?

Minjavernd hf. hefur sett fram tillögur um nýjan stað fyrir Zimsen húsið úr Hafnarstræti. Ein tillagan er að hús Hlöllabáta á Ingólfstorgi verði rifið til að rýma fyrir Zimsen. Skelfilegt, segir eigandi Hlöllabáta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×