Viðskipti innlent

Sigurður Óli til Stefnis

Hörður Ægisson skrifar
Sigurður Óli Hákonarson hefur starfað í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka undanfarin ár.
Sigurður Óli Hákonarson hefur starfað í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka undanfarin ár.
Sigurður Óli Hákonarson, sem hefur starfað í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka undanfarin ár, hefur sagt upp störfum hjá bankanum og ráðið sig til sjóðastýringarfyrirtækisins Stefnis, dótturfélags Arion banka, samkvæmt upplýsingum Markaðarins.

Sigurður Óli hefur starfað á fjármálamarkaði um langt árabil og var meðal annars framkvæmdastjóri Landsvaka, dótturfélags Landsbanka Íslands, á árunum 2004 til 2008. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Fjárfestingasjóðs Búnaðarbankans. 

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×