Enski boltinn

„Mér líður eins og Benjamin Button. Ég fæddist gamall og mun deyja ungur.“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zlatan er kominn með 27 mörk.
Zlatan er kominn með 27 mörk. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic segist vera eins og Benjamin Button og hann yngist bara með aldrinum. Þetta sagði Svíinn eftir sigurinn á Sunderland í dag en Manchester United vann leikinn 3-0 og Zlatan skoraði eitt fyrir gestina.

Þessi 35 ára framherji gerði fyrsta mark leiksins í dag og hefur hann núna skorað 27 mörk fyrir United í öllum keppnum. Leikmaðurinn hefur skorað 250 mörk eftir að hann varð 30 ára.

„Ég æfi mikið og er alltaf mjög einbeittur og hef mikla trú á sjálfum mér,“ sagði Zlatan eftir leikinn í dag.

„Ég hef engar áhyggjur og held bara áfram að spila, og ég elska það. Því eldri sem ég verð, því gáfaðri verð ég inni á knattspyrnuvellinum. Auðvitað get ég ekki hreyft mig eins og ég gat fyrir 10-15 árum en ég er bara skynsamari og eyði ekki orkunni til einskins.“ Hann segist í raun verða betri og betri.

„Mér líður eins og Benjamin Button. Ég fæddist gamall og mun deyja ungur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×