Þriðji hver jarðarbúi er fátækur Guðsteinn Bjarnason skrifar 27. mars 2017 09:00 Krakkar á Gasasvæðinu eru meðal þeirra jarðarbúa sem hafa ekki notið framfara síðustu áratuga. vísir/epa
Þriðji hver íbúi jarðarinnar býr enn við erfið lífsskilyrði þrátt fyrir að miklar framfarir hafi orðið síðustu 26 árin. Þetta kemur fram í nýrri Þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem gefin er út árlega. „Mannkynið hefur náð miklum árangri við að vinna bug á örbirgð, bæta aðgang fólks að menntun, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti og við að gefa konum og stúlkum fleiri möguleika,“ sagði Helen Clark, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands og núverandi yfirmaður Þróunarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, þegar skýrslan var kynnt í Svíþjóð. „En þessi árangur,“ bætti hún við, „er aðeins forleikurinn að næstu verkefnum, sem gætu orðið enn erfiðari, og snúast um að tryggja það að alþjóðlegar framfarir nái til allra.“ Í skýrslunni er sértök athygli vakin á því að ákveðnir hópar fólks eiga erfiðara en aðrir með að bæta hag sinn og njóta þeirra framfara sem þó hafa orðið. Almennt séð eru konur til dæmis fátækari en karlar. Þær hafa lægri tekjur og færri tækifæri á flestum sviðum lífsins. Í hundrað löndum er þeim bannað að stunda ákveðin störf og í átján löndum þurfa konur samþykki eiginmanns síns til að stunda vinnu utan heimilisins. Þá eiga íbúar í dreifbýli oft erfiðara með að njóta framfaranna en borgarbúar. Börn utan þéttbýlis eru til dæmis líklegri til að ná minni árangri í skóla. Flóttafólk á oft erfitt með að fá vinnu, komast í skóla og taka þátt í stjórnmálum. Sama gildir um fólk sem flytur á milli landa. Þá verða þjóðernisminnihlutahópar oft fyrir fordómum og mismunun í samfélaginu og sama á við um samkynhneigt fólk og aðra hópa sem ekki eru gagnkynhneigðir. Helen Clark sagði mikilvægt að útrýma þeirri djúpstæðu mismunun sem býr í hefðum og reglum samfélagsins og breyta því hve miserfitt fólk á með að taka þátt í stjórnmálum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Sjá meira