Glamour

Áhorf á Keeping up with the Kardashians aldrei verið minna

Ritstjórn skrifar
Kim er líklegast ekki ánægð með fréttirnar.
Kim er líklegast ekki ánægð með fréttirnar. Mynd/Getty
Nýjasta sería Keeping up with the Kardashians var frumsýnd seinustu helgi og er óhætt að segja að áhorfstölurnar hafi komið mikið á óvart. Fjallað var að einhverju leiti um ránið á Kim í París þó að betur verði farið út í það í næsta þætti. Því vekur það furðu að ekki hafi fleiri horft á þáttinn sem fékk 33% minna áhorf núna miðað við frumsýningarþáttinn í seinustu seríu. 

Það voru aðeins 1.4 milljónir Bandaríkjamanna sem horfðu á þáttinn miðað við 2.19 milljónir í fyrra. Nú eru margir sem spurja sig hvort að hægt sé að halda áfram með þáttinn upp úr þessu. Raunveruleikaþátturinn er stærsti þátturinn á sjónvarpsstöðinni E! og því er nokkuð ljóst að eitthvað stórkostlegt þarf að gerast svo að þátturinn haldi sömu áhorfstölum eins og fyrir nokkrum árum. 






×