Koltvísýringslosun nær óbreytt þriðja árið í röð Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2017 12:57 Rúmlega 32 milljarðar tonna koltvísýrings voru losaðir við orkuframleiðslu í heiminum á síðasta ári. Vísir/EPA
Ríki heims losuðu svipað magn koltvísýrings út í lofthjúp jarðar á síðasta ári og síðustu tvö árin á undan. Ný skýrsla Alþjóðaorkumálastofnunarinnar sýnir að hagvöxtur á heimsvísu jókst þrátt fyrir að koltvísýringslosunin hafi staðið í stað. Alls nam losun gróðurhúsalofttegundarinnar frá orkuframleiðslu 32,1 milljarði tonna á síðasta ári. Það er svipað magn og losað var árin 2014 og 2015. Á sama tíma óx hagkerfi heims um 3,1%. Þetta þykir til marks um að hagkerfi ríkja heims séu að verða minna háð jarðefnaeldsneyti en áður. Stöðunin í losun er meðal annars tilkomin vegna þess að losun Bandaríkjamanna og Kínverja dróst saman um 3% og 1,6% og í Evrópu var losun óbreytt þó að önnur ríki hafi aukið útblástur sinn. Í skýrslunni kemur einnig fram að endurnýjanlegir orkugjafar hafi staðið undir meira en helmingi vaxtar í orkuframleiðslu árið 2016.Ekki nóg að losunin fletjist útÞrátt fyrir þessi góðu tíðindi fyrir umhverfið er losun manna á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni enn geigvænleg. Nýleg skýrsla bandarísku Haf- og loftslagsstofnunarinnar (NOAA) sýndi þannig að styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum hafi aldrei aukist hraðar en nú, hundruð sinnum hraðar en eftir síðustu ísöld. Ætli ríki heims sér að ná markmiði Parísarsamkomulagsins um að halda hlýnun jarðar innan við 2°C á þessari öld, hvað þá innnan við 1,5°C eins og stefnt er að, er ekki nóg að losun gróðurhúsalofttegunda fletjist út heldur þarf að draga verulegar úr henni. Í frétt Washington Post kemur fram að til að eiga raunhæfa möguleika á að ná 2°C-markmiðinu mega menn ekki losa meira en 800 milljarða tonna af koltvísýringi út í lofthjúpinn. Miðað við núverandi losun verður það svigrúm nýtt til fulls á aðeins aldarfjórðungi.
Tengdar fréttir Styrkur koltvísýrings setur áfram met Magn gróðurhúsalofttegundarinnar hefur vaxið hundrað til tvö hundruð sinnum hraðar síðasta áratuginn en þegar síðustu ísöld lauk. 12. mars 2017 12:15 Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar Sjá meira
Styrkur koltvísýrings setur áfram met Magn gróðurhúsalofttegundarinnar hefur vaxið hundrað til tvö hundruð sinnum hraðar síðasta áratuginn en þegar síðustu ísöld lauk. 12. mars 2017 12:15