Sport

Tveir grjótharðir saman á mynd

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Aron Einar sá Gunnar Nelson hengja Alan Jouban.
Aron Einar sá Gunnar Nelson hengja Alan Jouban. Vísir/Getty
Landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, Aron Einar Gunnarsson, lét sig ekki vanta þegar Gunnar Nelson barðist í London í gær.

Aron Einar er mikill áhugamaður um blandaðar bardagaíþróttir og eftir bardaga Gunnars náði Aron að hitta á bardagahetjuna og fá með honum rándýra mynd sem gæti heitið „tveir grjótharðir“.

Aron Einar var ekki eina íslenska knattspyrnuhetjan sem var viðstödd bardagann. Gylfi Þór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon sáu Gunnar Nelson einnig fara á kostum.

@gunninelson what a guy

A post shared by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson) on

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×