Jafntefliskóngarnir loksins komnir upp úr hjólfarinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. mars 2017 08:00 Jesse Lingard fagnar marki sínu með Juan Mata og Ashley Young í 600. sigri Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Eftir 19 vikur í 6. sæti deildarinnar færðist United loksins upp um sæti með sigrinum á Middlesbrough. vísir/getty
Fagnaðarlæti José Mourinho, stjóra Manchester United, eftir að Antonio Valencia gulltryggði 1-3 sigur gegn Boro í gær gáfu til kynna hversu litlu mátti muna að Middlesbrough var nálægt því að næla í stig gegn United. Eftir að Rudy Gestede minnkaði muninn í 1-2 undir lok leiksins bönkuðu heimamenn hressilega á dyr United og heimamenn voru ekki langt frá því að tryggja 11. jafntefli United á leiktíðinni. Með sigrinum hreyfðist United í fyrsta sinn upp töfluna frá því í nóvember en liðið situr nú í fimmta sæti. Ekkert lið hefur gert fleiri jafntefli en United, eða tíu. Að sama skapi hefur ekkert lið tapað færri leikjum en United á tímabilinu og því auðvelt að færa rök fyrir því að jafnteflin hafi komið í veg fyrir að liðið hafi blandað sér af alvöru í baráttu um Englandsmeistaratitilinn. En hver er ástæðan fyrir öllum þessum jafnteflum? Af hverju hefur United ekki tapað leik frá því október án þess þó að komast upp úr 6. sætinu fyrr en nú?Ferðalög, ferðalög, ferðalög Það sem af er tímabili hefur ekkert lið á Englandi ferðast jafn mikið í útileiki og lið Manchester United. Vegna þátttöku liðsins í Evrópudeildinni hefur það þurft að ferðast á fjarlægari slóðir en almennt gerist á venjulegu tímabili. Það sem af er tímabili hafa leikmenn United ferðast um 20 þúsund kílómetra í útileiki í Evrópudeildinni, um tvöfalt lengri veg en Manchester City, Tottenham, Arsenal og Leicester hafa ferðast vegna þátttöku sinnar í Evrópukeppnum. Chelsea hefur siglt lygnan sjó á toppi deildarinnar og leikmenn Liverpool hafa verið sprækari en oft áður á þessu tímabili. Ef til vill má að einhverju leyti skrifa það á að liðin taka ekki þátt í neinni Evrópukeppni og þurfa því ekki að ferðast nema innan Englands. Raunar var ferðalag Manchester United fram og til baka frá Rostov í Rússlandi vegna viðureignar United við FC Rostov í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar lengra en öll ferðalög Chelsea í útileiki á tímabilinu til samans. Á meðan leikmenn helstu andstæðinga United geta hvílt sig á milli leikja eru leikmenn United oftar en ekki á ferðalagi. Að þessu leyti hafa liðin í toppbaráttunni haft samkeppnislegt forskot á United það sem af er tímabili. Þetta telur enda hefur liðið aðeins unnið fimm af þeim tíu leikjum sem hafa verið spilaðir helgina eftir að liðið spilaði í miðri viku í Evrópudeildinni.Álag, álag, álag Ástæðan fyrir öllum þessum ferðalögum er einfaldlega sú að United hefur gengið vel í bikarkeppnunum á þessu tímabili. Liðið er langt komið í Evrópudeildinni, fór alla leið í Deildarbikarnum og datt út í átta liða úrslitum FA-bikarsins. Liðið hefur spilað 47 leiki í öllum keppnum það sem af er tímabili, flest allra liða í deildinni og tólf leikjum fleiri en topplið Chelsea. Að sögn Mourinho hefur tímasetning leikja United um helgar eftir leiki í Evrópukeppnum verið slæm hingað til og kvartaði hann sáran yfir því að leikurinn gegn Middlesbrough skyldi fara fram í hádeginu í gær eftir að liðið spilaði seint á fimmtudagskvöld. Var hann harðorður í garð enska knattspyrnusambandsins. „Ég held að þeim sé drullusama um ensk lið í Evrópukeppnum. Í öðrum löndum reyna menn að veita þessum liðum aðstoð,“ sagði Mourinho. Hafi Mourinho þó fundist álagið vera mikið hingað til ætti hann ekki að líta á dagskrána fram undan. Fari liðið alla leið í úrslitaleik Evrópukeppninnar mun liðið spila sextán leiki á næstu 65 dögum, það er einn leikur á fjögurra daga fresti. Á sama tímabili mun Arsenal spila að hámarki tíu leiki og Liverpool níu leiki. Leið United í Meistaradeildina virðist því vera þyrnum stráð.Ólseigir en meira þarf til Miðað við dagskrána sem liggur fyrir ætti United að eiga í basli með að landa einu af meistaradeildarsætunum fjórum. Stuðningsmenn United geta þó huggað sig við það að Mourinho hefur tekist að gera liðið ólseigt enda er liðið taplaust í deildinni í síðustu átján deildarleikjum. Á síðasta tímabili tapaði United tíu leikjum og Mourinho hefur því að mestu leyti tekist að snúa tapleikjunum í jafntefli. Það er mikil framför frá síðasta tímabili. Betur má þó ef duga skal og Mourinho var ekki ráðinn til þess að gera jafntefli. Á næsta leiktímabili þarf hann að snúa jafnteflunum í sigra. Lykilatriði í því er að liðið þurfi ekki að takast á við Evrópudeildina og öll þau ferðalög sem henni tengjast. Stóra spurningin er hvort álagið muni gera út um þær vonir og festa Manchester United í hjólfari Evrópudeildarinnar um fyrirsjáanlega framtíð.
Enski boltinn Tengdar fréttir Llorente fær Gylfa til þess að blómstra Fernando Llorente hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga undir stjórn Pauls Clement hjá Swansea. Hann vinnur einstaklega vel með Gylfa Sigurðssyni og saman hafa þeir skotið Swansea úr botnsætinu. 6. mars 2017 06:00 Víkingaklappið boðar bara vandræði á Anfield Aðra helgina í röð hljómaði víkingaklappið á Anfield eftir ósigur heimaliðsins fyrir Íslendingaliði. Jón Daði Böðvarsson fékk mikið hrós fyrir innkomu sína gegn Liverpool og var mjög óheppinn að skora ekki. Hjólin hafa losnað undan Liverpool-vagninum í janúar en liðið er án sigurs í deildinni og fallið úr báðum bikarkeppnunum. 30. janúar 2017 06:30 Pirraður Pep loksins að glíma við mótlæti Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, stendur nú frammi fyrir fyrsta raunverulega mótlæti ferils síns. Liðið tapaði illa í toppslagnum gegn Chelsea á laugardaginn og hefur ekki unnið heimaleik frá því í september. Varnarleikur Man. City hefur verið slakur en liðið hefur aðeins tvisvar haldið hreinu í fjórtán deildarleikjum. 5. desember 2016 07:00 Moses loksins kominn til fyrirheitna landsins eftir langa eyðimerkurgöngu Victor Moses hefur gengið endurnýjun lífdaga undir stjórn hins litríka stjóra Chelsea, Antonio Conte. Frá því að Moses kom inn í byrjunarliðið hefur topplið Chelsea unnið sjö deildarleiki í röð. 28. nóvember 2016 07:00 Mest lesið Fann gamlan vin í leit sinni að nýju og breyttu lífi Körfubolti Bellingham talaði um sig í þriðju persónu eftir leik: Sjáðu sigurmarkið Fótbolti Eru að reyna að kaupa kærustuparið Enski boltinn Njarðvík yfirgefur Ljónagryfjuna og fær nýjan heimavöll afhentan í sumar Körfubolti Norðurlandamethafinn útskrifuð með BS gráðu í læknisfræði Sport Einn óvæntasti sigur EM staðreynd Fótbolti Frábær mörk og óvæntur stórsigur Rúmena á Úkraínumönnum Fótbolti Annað ljótt brot á Caitlin Clark orðið að fjölmiðlafári Körfubolti Neffati um Íslandsævintýrið: Grófur fótbolti í íslensku deildinni Íslenski boltinn Mbappé með ákall til kjósenda í Frakklandi Fótbolti Fleiri fréttir Man City sagt ekki ætla að styrkja sig með nýjum leikmönnum Eru að reyna að kaupa kærustuparið Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Lallana snýr aftur til Southampton Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Tilkynntu framlengingu Kerr með dramatísku myndbandi Myndi vilja tala við Rashford og Greenwood en selja Maguire Einn af styrktaraðilum Newcastle sagður misþyrma starfsfólki Ten Hag heldur starfi sínu hjá Manchester United Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Fyrrum fyrirliði Liverpool liggur þungt haldinn á spítala Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum Van Gaal hrósar Liverpool fyrir að ráða Slot Shaw skýtur á Ten Hag og læknateymi United: „Ég hefði aldrei átt að spila“ Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Sjá meira
Llorente fær Gylfa til þess að blómstra Fernando Llorente hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga undir stjórn Pauls Clement hjá Swansea. Hann vinnur einstaklega vel með Gylfa Sigurðssyni og saman hafa þeir skotið Swansea úr botnsætinu. 6. mars 2017 06:00
Víkingaklappið boðar bara vandræði á Anfield Aðra helgina í röð hljómaði víkingaklappið á Anfield eftir ósigur heimaliðsins fyrir Íslendingaliði. Jón Daði Böðvarsson fékk mikið hrós fyrir innkomu sína gegn Liverpool og var mjög óheppinn að skora ekki. Hjólin hafa losnað undan Liverpool-vagninum í janúar en liðið er án sigurs í deildinni og fallið úr báðum bikarkeppnunum. 30. janúar 2017 06:30
Pirraður Pep loksins að glíma við mótlæti Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, stendur nú frammi fyrir fyrsta raunverulega mótlæti ferils síns. Liðið tapaði illa í toppslagnum gegn Chelsea á laugardaginn og hefur ekki unnið heimaleik frá því í september. Varnarleikur Man. City hefur verið slakur en liðið hefur aðeins tvisvar haldið hreinu í fjórtán deildarleikjum. 5. desember 2016 07:00
Moses loksins kominn til fyrirheitna landsins eftir langa eyðimerkurgöngu Victor Moses hefur gengið endurnýjun lífdaga undir stjórn hins litríka stjóra Chelsea, Antonio Conte. Frá því að Moses kom inn í byrjunarliðið hefur topplið Chelsea unnið sjö deildarleiki í röð. 28. nóvember 2016 07:00