Marsspá Siggu Kling – Vogin: Það er eins og þú leggir þig 200% fram 3. mars 2017 09:00
Elsku vog, ég get ekki betur séð en að þú sért að fara inn í tímabil sem er eins og þín besta verslunarmannahelgi. Það er mikið að gerast, margar áhættur teknar og ótrúlegir sigrar yfir svo mörgu að það sem miður fer virðist vera svo lítið og óttalega ómerkilegt að ég nenni ekki einu sinni að lýsa því. Það er eins og þú elskir spennuna sem birtist þér í svo mörgum myndum. Með þennan kraft er eins og þú hafir unnið Óskarsverðlaunin, næstum eins og La La Land gerði. Þú átt eftir að hafa góða yfirsýn og ná að gera hlutina í hárréttri röð þannig að þér verður veitt athygli fyrir margt. Þú átt svo sannarlega eftir að sjá það að þú hefur kraft og orku til að standa þig í þeim verkefnum sem eru yfir þér. Það er eins og þú leggir þig 200% fram, þú munt vita að þetta er þinn tími til að sýna þér þitt rétta andlit og vera einlæg og segja nákvæmlega hvernig þú vilt hafa hlutina. Ekki láta neinn í kringum þig þurfa að geta í eyðurnar. Að hika er sama og tapa og þú þarft að þora til að skora. Þetta er tímabilið sem hugrekkið verður svo sannarlega vinur þinn, þú horfist í augu við sjálfan þig án ótta og sérð þá svo sannarlega að þú hefur upp á allt að bjóða sem þú þarft til að hafa hamingjuna í kringum þig. Er það ekki það eina sem við þurfum að vera - hamingjusöm? Þú munt smávegis þurfa að plana fram í tímann, það er nú alveg gott og blessað á meðan þú hefur ekki hugann langt á undan þér í tímanum. Því þá nærðu ekki að njóta hamingjunnar sem er hér og nú! Það er allt í lagi að plana, skrifaðu niður hvernig þú vilt hafa þín plön og hafðu trú á því að það gerist, en þú þarft að læra það að sleppa framtíðarplönunum úr huganum þínum svo að alheimsorkan geti hjálpað þér. Þetta er nákvæmlega eins og hjá þeim sem stóðu að myndinni La La Land og byggðu í kringum þetta magnaða verk - það þarf að ráða góða leikara í öll hlutverk og svona er þetta nefnilega hjá þér. Mottó: Andaðu inn hamingjunni og andaðu frá þér hamingjunni.Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Tatcher.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið Selur slapp úr hvalskjafti Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Lífið Gáfu dótturinni þrjú nöfn Lífið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina Lífið Mætt aftur til vinnu Lífið Fleiri fréttir Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Tito Jackson er látinn „Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?“ Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi Ljósmyndaþáttur Ragnars Axelssonar: „Fjöllin hafa vakað lengur en í þúsund ár“ Sex heilnæm heilsuráð inn í haustið Krakkatía vikunnar: Litir, ljón og sjón Ástin blómstrar hjá Erpi og nýju kærustunni á Ítalíu Sjá meira