Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Njarðvík 92-85 | Rosalega mikilvægur sigur hjá Þór

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Tryggvi Hlinason er lykilmaður í liði Þórs.
Tryggvi Hlinason er lykilmaður í liði Þórs. Vísir
Þór frá Akureyri steig stórt skref í átt að úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta í kvöld eftir sjö stiga sigur á Njarðvík, 92-85, í lokaleik 20. umferðar í Höllinni á Akureyri í kvöld.

Þórsarar eru með 20 stig ásamt þremur öðrum liðum í fimmta til áttunda sæti deildarinnar. Njarðvíkingar sitja eftir í níunda sæti með 18 stig en eru núna verri innbyrðis á móti flestum liðum í kringum sig.

Þórsarar byrjuðu betur og voru tólf stigum yfir í hálfleik, 48-36,  en Njarðvíkingum tókst að jafna leikinn með frábærum þriðja leikhluta.

Liðin skiptust á því að hafa forystuna í fjórða leikhluta en heimamenn voru sterkari í lokin og tryggðu sér rosalega mikilvægan sigur.

George Beamon skoraði 33 stig og tók 13 fráköst fyrir Þór í kvöld og Darrel Keith Lewis var með 24 sig. Tryggvi Snær Hlinason bætti við 14 stigum og 8 fráköstum og Ragnar Helgi Friðriksson gaf 10 stoðsendingar.

Logi Gunnarsson skoraði 21 stig fyrir Njarðvík og Myron Dempsey var með 18 stig. Björn Kristjánsson skoraði 13 stig og gaf 9 stoðsendingar og Jóhann Árni Ólafsson var með 13 stig.



Af hverju vann Þór?

Þórsarar voru betri í fyrri hálfleik og leiða leikinn með tólf stigum í leikhléi. Þeir mættu hinsvegar seint til leiks í síðari hálfleik sem hleypti gestunum inn í leikinn og vel það. Síðasti leikhluti var jafn og spennandi og skiptust liðin á forystunni.

Í raun hefði sigurinn getað dottið hvorum megin sem var en mögulega fór of mikil orka í þriðja leikhlutann hjá Njarðvíkingum og því áttu heimamenn meira eftir á tanknum.

Þá verður að minnast á atvinnumenn Njarðvíkinga sem bregðast liðinu sínu í tvígang í fjórða leikhluta. Jeremy Atkinson og Myron Dempsey sóttu sér báðir tæknivillu á afar barnalegan hátt á mikilvægum augnablikum í leiknum.

Bestu menn vallarins

Þegar upp var staðið má segja að George Beamon hafi verið munurinn á annars afar jöfnum liðum Þórs og Njarðvíkur í kvöld.

Beamon lýkur leik sem langstigahæsti maður vallarins með 33 stig og tekur þar að auki 13 fráköst. Þegar Þórsarar voru í vandræðum leituðu þeir til hans og hann svaraði oftast kallinu. Spilaði hverja einustu sekúndu leiksins í þokkabót.  Þó Ragnar Helgi Friðriksson hafi aðeins skilað tveim stigum á töfluna gaf hann 10 stoðsendingar og stjórnaði sóknarleik Þórs reglulega vel.

Njarðvík vantaði mann sem þeir gátu leitað til þegar þeir voru í vandræðum. Logi Gunnarsson átti sína spretti og sama má segja um Björn Kristjánsson og Myron Dempsey.

Hvað gekk illa?

Þórsarar voru á löngum köflum í algjöru rugli varnarlega, þá sérstaklega þegar kom að fráköstum enda taka Njarðvíkingar alls átján sóknarfráköst í leiknum. Hefðu þeir hitt á Njarðvíkinga í aðeins betra formi í skotunum sínum hefði það getað reynst dýrkeypt.

Tölfræði sem vakti athygli

Þórsarar fara tuttugu og átta sinnum á vítalínuna en það skilar þeim þó aðeins fjórtán stigum. Njarðvíkingar eru sömuleiðis með 50% vítanýtingu en þeir skora úr fimm af tíu vítaskotum sínum.

Benedikt: Brjálaður yfir byrjuninni í síðari hálfleik

Það var engu líkara en þungu fargi væri létt af Benedikt Guðmundssyni, þjálfara Þórs, í leikslok.

„Þetta eru gríðarlega mikilvæg tvö stig sem eiga eftir að telja gríðarlega í baráttunni um úrslitakeppnissæti. Mér fannst við vera betri aðilinn í fyrri hálfleik en ég er brjálaður með hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn. Það er algjörlega úti í hött hvernig við nálgumst þriðja leikhluta. Við þurftum að hafa fyrir því að ná taktinum aftur en sem betur fer tókst það," segir Benedikt sem á erfitt með að átta sig á því af hverju leikmenn hans léku jafn illa og raun bar vitni í upphafi síðari hálfleiks.

„Ég skil þetta ekki. Við vorum búnir að vera að tala um að stíga út skotmann. Ég eyddi hálfleiknum mínum í að tala um þetta og í fyrstu sókn stígur kaninn minn ekki út og þeir ná enn einu sóknarfrákastinu. Ég á eftir að pirra mig eitthvað á þessu í kvöld en ég verð líka að hrósa mínum leikmönnum fyrir góðar 30 mínútur hérna í kvöld."

George Beamon var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins í kvöld.

„Það er langt síðan hann hefur spilað jafn vel sóknarlega. Við erum búnir að vera að bíða eftir þessu. Hann er búinn að vera ekki nógu öflugur í sókninni í mörgum leikjum. Ég geri miklar kröfur til minna erlendu leikmanna. Hann er duglegur í vörninni en þarf oft að vera klárari," segir Benedikt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×