Körfubolti

Daníel Guðni: Mér líður ömurlega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Daníel Guðni Guðmundsson vonast til að verða áfram þjálfari Njarðvíkur.
Daníel Guðni Guðmundsson vonast til að verða áfram þjálfari Njarðvíkur. vísir/vilhelm
Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, hefur áhuga á að halda áfram með liðið á næstu leiktíð. Þetta sagði hann eftir tapið gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld.

Njarðvík missir af sinni fyrstu úrslitakeppni í efstu deild karla síðan 1993 og segir þjálfarinn að það sé verulega sárt.

„Mér líður ömurlega. Þetta er það erfiðasta sem hægt er að lenda í á körfuboltaferlinum. Við vissum að þetta yrði erfiður slagur en samt er maður orðlaus. Þetta er afar sárt.“

Daníel Guðni segir að leikmannamál hafi verið að þvælast fyrir liðinu í upphafi tímabilsins. „Það voru hrókeringar í upphafi árs sem voru erfiðar. Þetta hefði verið allt annað ef maður hefði haft þetta lið sem spilaði í kvöld frá upphafi leiktíðar.“

Hann segir óljóst hvað taki við hjá honum en hann myndi sjálfur kjósa að vera áfram með Njarðvíkurliðið.

„Ég vona það. Það á eftir að halda aðalfund í deildinni og kjósa nýja stjórn. Þetta er ekki eitthvað sem ég ræð sjálfur. En þetta er lið sem á framtíðina fyrir sér og það er óskandi að það haldist saman á næstu árum.“

Nánari umfjöllun um leikinn má finna hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×