Menning

Guðmundur Andri og Linda tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur er tilnefnd og einnig Og svo tjöllum við okkur í rallið: Bókin um Thor eftir Guðmund Andra Thorsson.
Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur er tilnefnd og einnig Og svo tjöllum við okkur í rallið: Bókin um Thor eftir Guðmund Andra Thorsson. Vísir/stefán
Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2017. Fulltrúar hvers lands í dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hafa tilnefnt verk frá sínu landi til verðlaunanna. Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur er tilnefnd og einnig Og svo tjöllum við okkur í rallið: Bókin um Thor eftir Guðmund Andra Thorsson.

Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs verður tilkynntur og verðlaunin afhent þann 1. nóvember í Finlandia-húsinu í Helsinki.

Eftirfarandi verk eru tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2017:

Danmörk

Vivian eftir Christinu Hesselholdt. Skáldsaga, Rosinante & Co, 2016.

Erindring om kærligheden eftir Kirsten Thorup. Skáldsaga, Gyldendal, 2016.

Finnland

Oneiron eftir Lauru Lindstedt. Skáldsaga, Teos, 2015.

De tysta gatorna eftir Tomas Mikael Bäck. Ljóðabók, Schildts & Söderströms, 2016.

Færeyjar

Sunnudagsland eftir Sissal Kampmann. Ljóðabók, Mentunargrunnur Studentafelagsins, 2016.

Ísland

Frelsi eftir Lindu Vilhjálmsdóttur. Ljóðabók, Mál og menning, 2015.

Og svo tjöllum við okkur í rallið. Bókin um Thor eftir Guðmund Andra Thorsson. Minningabók, JPV, 2015.

Noregur

Arv og miljø eftir Vigdis Hjorth. Skáldsaga, Cappelen Damm, 2016.

Termin. En fremstilling av vold i Norge eftir Henrik Nor-Hansen. Skáldsaga, Tiden Norsk Forlag, 2016.

Svíþjóð

Djupa, kärlek, ingen. Dikter 1992-2015 eftir Ann Jäderlund. Ljóðasafn, Albert Bonniers förlag, 2016.

Anteckningar om hö eftir Birgittu Lillpers. Ljóðabók, Wahlström & Widstrand, 2016.

Álandseyjar

Jag är Ellen eftir Johönnu Boholm. Prósalýrísk frásögn, Schildts & Söderströms, 2016. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×