Kynntu einstaklega hreyfanlegt vélmenni Samúel Karl Ólason skrifar 28. febrúar 2017 10:15 Handle sýnir hvað það getur.
Fyrirtækið Boston Dynamics hefur vakið athygli á undanförnum árum fyrir vinnu sína varðandi vélmenni. Það hefur einnig vakið athygli fyrir að koma illa fram við vélmennin sín, hrinda þeim og jafnvel sparka í þau, en þau atvik hafa ávallt verið til að sýna fram á jafnvægisskyn vélmennanna. Handle, nýjasta vélmenni fyrirtækisins, sýnir hreyfigetu sem önnur vélmenni fyrirtækisins hafa ekki komist nærri því að sýna. Það keyrir um upprétt á tveimur hjólum og getur jafnvel hoppað upp á borð á fleygiferð.Samkvæmt Boston Dynamics ferðast Handle á 14 kílómetra hraða á klukkustund og getur hoppað um 1,2 metra upp í loftið. Þá getur vélmennið farið niður tröppur og lyft þungum hlutum, eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan. Vélmennið getur ferðast um 24 kílómetra áður en nauðsynlegt er að hlaða rafhlöðu þess.
Mest lesið „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira