Telja ósennilegt að gatið skýri mögulega slysasleppingu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. febrúar 2017 15:54 Frá Dýrafirði. vísir/pjetur
Matvælastofnun telur ósennilegt að gat sem fannst á botni eldiskvíar á vegum Arctic Sea Farm í Dýrafirði geti útskýrt mögulega slysasleppingu regnbogasilungs sem var til umfjöllunar síðastliðið haust.Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr eldinu þar sem í dag fannst gat við botn kvíar og í tilkynningu frá fyrirtækinu í gær sagði að þarna kunni að vera komin „meginskýringin á mögulegri slysasleppingu regnbogasilungs sem fjallað var um sl. haust þegar engin skýring fannst á því hvaðan regnbogasilungur væri upprunninn sem veiddist í ám á Vestfjörðum.“ Matvælastofnun telur þó ósennilegt að málin tengist og nálgast þau sem tvö aðskilin tilfelli að svo stöddu. Talsverður stærðarmunur sé á þeim fiskum sem veiddust í sumar og þeim fisk sem alinn er upp í umræddri kví. Matvælastofnun mun þó óska eftir ítarlegri upplýsingum úr kvínni. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að í eftirliti stofnunarinnar með starfsstöðvum Arctic Sea Farm í Dýrafirði þann 20. júní sl. kom fram að búnaður fyrirtækisins var í lagi, þjálfun starfsmanna var einnig í lagi, neðansjávareftirlit var reglulegt, viðbragðsáætlun var til staðar vegna slysasleppinga og var hún aðgengileg á eldissvæðinu. Engin frávik komu fram í verklagi eða búnaði sem gætu orsakað sleppingar úr kvíum. Fyrirtækið hefur í samráði við Fiskistofu sett af stað viðbragðsáætlun vegna slysasleppinga og verið er að leggja mat á fjölda fiska sem hafa sloppið. Eftirlitsmaður á vegum Matvælastofnunar mun skoða aðstæður hjá fyrirtækinu á morgun og frekari upplýsinga verður aflað um mögulegt umfang sleppingar og tildrög hennar.
Tengdar fréttir Vilja rannsókn á strokufiski úr sjókvíum Regnbogasilung er nú að finna í ám um stóran hluta Vestfjarða og kannar nú Fiskistofa hvort strokufiskur sé einnig kominn í Ísafjarðardjúp. Fiskurinn kemur úr sjóeldi á Vestfjörðum. 1. október 2016 07:00 Telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr fiskeldi í Dýrafirði Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr eldinu þar sem í dag fannst gat við botn kvíar. 16. febrúar 2017 19:32 Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira
Vilja rannsókn á strokufiski úr sjókvíum Regnbogasilung er nú að finna í ám um stóran hluta Vestfjarða og kannar nú Fiskistofa hvort strokufiskur sé einnig kominn í Ísafjarðardjúp. Fiskurinn kemur úr sjóeldi á Vestfjörðum. 1. október 2016 07:00
Telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr fiskeldi í Dýrafirði Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði telja að umtalsvert magn regnbogasilungs hafi sloppið úr eldinu þar sem í dag fannst gat við botn kvíar. 16. febrúar 2017 19:32