Viðskipti innlent

Bein útsending: Fyrirtækin sem hristu upp í markaðnum

Tinni Sveinsson skrifar
Skúli Mogensen, Liv Bergþórsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Skúli Mogensen, Liv Bergþórsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Vísir
Aðalfundur Félags atvinnurekenda er haldinn á Nauthóli í dag klukkan 14. Fundurinn er í beinni útsendingu sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan þegar hann hefst.

Á undan venjulegum aðalfundarstörfum er opinn fundur undir yfirskriftinni Áskorendurnir – fyrirtækin sem hristu upp í markaðnum. Þar halda erindi nýr ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar og fjórir brautryðjendur í íslensku viðskiptalífi, auk framkvæmdastjóra FA sem fjallar um baráttu félagsins fyrir virkri samkeppni.

Opni fundurinn hefst kl. 14 en venjuleg aðalfundarstörf kl. 16.15. Dagskránna má sjá hér fyrir neðan. Fundarstjóri opna fundarins er Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður N1. Fundarstjóri aðalfundar FA er Stefán S. Guðjónsson, forstjóri Lindsay.

Uppfært klukkan 17:41

Útsendingunni er lokið en upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.

14.00 Ávarp ráðherra

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

14.15 Heimsyfirráð eða dauði

Skúli Mogensen, forstjóri Wow Air

14.35 Nova – stærsti skemmtistaður í heimi

Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova

14.55 Framtíðarmat

Valur Hermannsson, einn stofnenda Eldum rétt

15.10 Arna – bráðþroska á byrjunarreit

Þórarinn E. Sveinsson, stjórnarformaður Örnu, Mjólkurvinnslunnar í Bolungarvík

15.25 Baráttan fyrir virkri samkeppni

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA

15.40  Kaffihlé

16.15 Venjuleg aðalfundarstörf






Fleiri fréttir

Sjá meira


×