Viðskipti innlent

Fjölgun ferðamanna í ár sú mesta frá upphafi mælinga

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fjölgun erlendra ferðamanna milli ára verður sú mesta sem sést hefur frá því opinberar skráningar hófust hérlendis, eða nærri 40 prósent. Gestafjöldinn í ár verður rétt um 1,8 milljónir. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 

Það þarf ekki annað en að horfa á mannmergðina við Hallgrímskirkju þessa dagana til að sjá það sem er að breyta Íslandi. Árið sem er að líða er að slá öll met, bæði í fjölda og fjölgun ferðamanna, samkvæmt tölum sem við fengum í dag frá Ferðamálastofu, en opinberar skráningar ná aftur til ársins 1950.

Tölur um brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð sýna fimmföldun undanfarin tólf ár, úr 361 þúsund árið 2005 og upp í 1.756 þúsund í ár, samkvæmt áætlaðri tölu.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir.
Súlurit yfir brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð lýsir vel þróuninni undanfarin tólf ár. Árið 2005 voru ferðamennirnir 361 þúsund talsins og tiltölulega hæg fjölgun næstu árin þar á eftir. En svo gaus Eyjafjallajökull  árið 2010 og síðan þá hafa súlurnar farið að minna æ meir á hækkandi stöplana í hliðarálmum Hallgrímskirkju og stefnir ferðamannafjöldinn í 1.756 þúsund í ár fyrir Leifsstöð. 

Tölur um hlutfallslega breytingu milli ára sýna að ferðamönnum fækkaði lítillega á árunum eftir hrun, 2009 og 2010, en þá hófst ævintýrið, og nú stefnir í að 30 prósenta fjölgun í fyrra verði toppuð með 39 prósenta fjölgun í ár.

Súluritið sýnir þann kipp sem varð í fjölgun ferðamanna eftir eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir.
Með aukningunni í ár er slegið yfir 60 ára gamalt met í ferðamannafjölgun milli ára, frá árinu 1955, en það ár komu tæplega 9.500 ferðamenn til landsins, miðað við rúmlega 6.800 árið 1954. Þeim hafði þá fjölgað um 2.600 frá fyrra ári, eða um 38,5 prósent milli ára.

Þegar bætt er við þeim sem koma með Norrænu og um aðra flugvelli en Keflavík má gera ráð fyrir að heildarfjöldinn í ár verði um 1.785 þúsund ferðamenn, miðað við áætlun sem Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri Ferðamálastofu, telur varfærnislega, - talan gæti farið í 1,8 milljónir.

Tölur um fjölgun í einstökum mánuðum sýna 60 prósenta aukningu síðustu þrjá mánuði ársins, miðað við sömu mánuði í fyrra. Tölur fyrir desember eru áætlaðar.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir.
Tölur um fjölgun í einstökum mánuðum ársins eru athyglisverðar. Janúar byrjaði með 24 prósenta fjölgun frá sama mánuði í fyrra, svo kom febrúar með 43 prósent, aukningin hélst í um og yfir 30 prósentum fram á haust, en síðustu þrír mánuðir eru hreint ótrúlegir, október og nóvember með 60 og 61 prósent, og menn áætla að fjölgunin nú í desember verði vart minni.

Eflaust þykir einhverjum nóg um og myndir frá Skólavörðuholtinu í dag rifjuðu upp ljóðlínur Steins Steinars um Hallgrímskirkju: „Húsameistari ríkisins! Ekki meir, ekki meir!“


Tengdar fréttir

Tekjur af turni Hallgrímskirkju fara yfir 200 milljónir

Heimsóknum gesta í Hallgrímskirkjuturn hefur fjölgað mikið síðustu ár. Samhliða hafa tekjur kirkjunnar aukist verulega. Tekjurnar fara meðal annars í að greiða fjögur hundruð milljóna króna bankalán sem hvílir á kirkjunni.

Reykjavík orðin dýrust miðað við aðrar höfuðborgir

Verulegar verðhækkanir hafa átt sér stað á liðum tengdum ferðaþjónustu á Íslandi á síðustu mánuðum. Hótel og veitingastaðir eru orðnir dýrari en fyrir hrun og dýrari en á evrusvæðinu og í Noregi.

Mikil fjölgun banaslysa í umferðinni síðustu ár

Aukna umferð má rekja til fjölda ferðamanna og að efnahagsástand hefur lagast eftir hrun. Banaslys síðustu tveggja ára eru langt yfir meðaltali fimm ára á undan. Brýnt að merkja vegi vel og búa svo um hnúta að þeir séu öruggir fyrir al

Vegir eins og í þriðjaheimsríki

Vegagerðin hefur verulegar áhyggjur af öryggi vegfarenda vegna fjölgunar ferðamanna. Mikill fjöldi ferðamanna er á vegum landsins um hátíðirnar. Illa búnir bílar á vegum landsins valda pirringi í umferðinni.

Hagkerfið berskjaldað fyrir áföllum í ferðaþjónustu

Nýir útreikningar Seðlabanka Íslands sýna að Íslendingar myndu lenda í miklum efnahagssamdrætti sem myndi smita út frá sér inn í allt hagkerfið ef fækkun yrði í fjöldi ferðamanna hér á landi og fjöldinn yrði aftur svipaður og hann var á árinu 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×