Viðskipti erlent

Tæknirisinn Nvidia prófar snjallbíla

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Audi útbúinn búnaði frá Nvidia.
Audi útbúinn búnaði frá Nvidia. nordicphotos/AFP
Bandaríski tæknirisinn Nvidia hefur nú fengið leyfi til þess að prófa sjálfkeyrandi bíla sína í Kaliforníuríki. Fylgir fyrirtækið þar með í fótspor Google, Ford, Tesla, Mercedes og fjölda annarra fyrirtækja.

Nvidia er þekkt fyrir að framleiða öflug skjákort fyrir borðtölvur er nýtast vel við spilun tölvuleikja. Skrefið er því stærra fyrir Nvidia heldur en til að mynda Ford og Mercedes.

Fyrirtækið notast við gervigreindina Drive PX2 sem hefur verið notuð af keppnisliðum í Roborace, kappakstri milli sjálfkeyrandi bíla.

Gengi hlutabréfa Nvidia hefur þrefaldast á árinu og sjöfaldast undanfarin fimm ár. Er gott gengi meðal annars talið stafa af því að fyrirtækið hefur fjarlægst helsta samkeppnisaðilann á sviði skjákorta, AMD, og selur nú mun fleiri skjákort.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×