Handbolti

Áfall fyrir Dag og Alfreð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagur getur ekki nýtt krafta Weinholds á HM í Frakklandi.
Dagur getur ekki nýtt krafta Weinholds á HM í Frakklandi. vísir/getty
Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason urðu báðir fyrir miklu áfalli í gær þegar örvhenta skyttan Steffen Weinhold meiddist illa á ökkla í leik Kiel og Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Weinhold verður frá í a.m.k. þrjá mánuði og missir því af HM í Frakklandi í janúar.

Weinhold, sem er þrítugur, lék hinn fyrsta landsleik árið 2008. Hann varð Evrópumeistari með Þýskalandi í byrjun þessa árs og var í þýska liðinu sem vann brons á Ólympíuleikunum í ágúst.

Weinhold kom til Kiel frá Flensburg 2014. Hann varð þýskur meistari með Kiel á þarsíðasta tímabili. Weinhold lék áður með Erlangen, Nordhorn og Grosswallstadt.

Weinhold er ekki eina örvhenta þýska skyttan sem missir af HM en Fabian Wiede, leikmaður Füchse Berlin, er einnig meiddur.

Dagur tilkynnti 28 manna hóp Þýskalands fyrir HM en hann má sjá með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Dagur tilkynnir stóra HM-hópinn

Dagur Sigurðsson hefur tilkynnt hvaða 28 leikmenn koma til greina í HM-hóp þýska landsliðsins í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×