Viðskipti erlent

Google hættir þróun sjálfkeyrandi bíla

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Sjálfkeyrandi bíll sem Google hefur verið að þróa.
Sjálfkeyrandi bíll sem Google hefur verið að þróa. Vísir/AFP
Tæknirisinn Google hefur hætt að þróa sinn eigin sjálfkeyrandi bíl. Þess í stað mun fyrirtækið einbeita sér að því að vinna með hefðbundnum bílaframleiðendum til að þróa slíka bíla. Frá þessu er greint á tæknifréttasíðunni The Information.

Sjálfstýringarverkefni Google, Chauffeur, er sagt vinna að því með bílaframleiðendum að þróa bíla með afmarkaða sjálfstýringu. Ekki er stefnt að því í bráð að losa bílana alveg við stýri og fetla. Nú þegar er unnið að slíkri útgáfu af bifreiðum Fiat Chrysler, en um það var tilkynnt í maí síðastliðnum.

Fram að þessu hefur Google unnið að þróun eigin sjálfkeyrandi bíls og hefur fyrirtækið prufukeyrt slíka bíla rúmlega þrjár milljónir kílómetra. Hins vegar er sagt að forstjóranum, Larry Page, hafi fundist sú nálgun óhagkvæm. Sergey Brin, sem stofnaði Google með Page, er sagður ósammála.

Þrátt fyrir það segir í frétt Information að Google hyggist enn þróa áfram sjálfkeyrandi leigubílaþjónustu og á fyrirtækið von á því að hún verði opin neytendum fyrir árslok 2017.

Hins vegar er Google ekki eina fyrirtækið með slík áform og eru önnur fyrirtæki komin lengra á þeirri vegferð. Uber prufar nú slíka þjónustu í Pittsburgh í Bandaríkjunum og það gerir fyrirtækið nuTonomy­ einnig í Singapúr og Boston.

Uppfært 14. desember klukkan 10:18: Heimildir The Information reyndust að mestu rangar. Sérstakt fyrirtæki hefur nú verið stofnað utan um sjálfkeyrandi verkefni Google og nefnist það Waymo.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×