Tíska og hönnun

Alicia Keys með íslenska slæðu

Elín Albertsdóttir skrifar
Ingibjörg Gréta Gísladóttir framleiðir fallegar silkislæður með mynstrum frá íslenskum listamönnum.
Ingibjörg Gréta Gísladóttir framleiðir fallegar silkislæður með mynstrum frá íslenskum listamönnum. MYND/VILHELM
Ingibjörg Gréta Gísladóttir leikkona fer ekki troðnar slóðir í lífinu. Hún ákvað að snúa baki við leiklistinni og hefja framleiðslu á silkislæðum. Meðal þeirra sem skarta slæðum eru Alicia Keys og Kardashian-systur.

Ingibjörg Gréta framleiðir ekki eingöngu slæður undir merkinu Saga Kakala því hún rekur viðburðafyrirtækið rigga.is og elskar að koma fyrirtækjum, verkefnum og viðburðum á flug, eins og hún orðar það.

Ingibjörg Gréta fór í viðskiptafræði eftir leiklistar­nám, hélt síðan áfram námi og sérhæfði sig í nýsköpun og frumkvöðlafræði. Hún starfaði í Hugmyndahúsi háskólanna um tíma en þar tengdu HR og Listaháskóli Íslands hönnun, vísindi og viðskipti saman.

„Upp úr þessu starfi spratt áhugi minn á listsköpun og viðskiptum. Ég framleiði silkislæður, rek fyrirtækið rigga.is og er með netverslunina Reykjavik Runway,“ segir Ingibjörg þegar hún lýsir því hvernig áhuginn kviknaði á hönnun og markaðssetningu. „Ég nálgast öll verkefni með „Design Thinking“ að leiðarljósi og ósk mín er að nýta þekkingu mína og sérsvið fyrir íslenska hönnuði á erlendum markaði,“ bætir hún við.

Nú er undirbúningi jólaviðburða lokið hjá Ingibjörgu þótt hún fylgi verkefnum allt til loka og undirbúningur verkefna næsta árs hafinn. Hún er með stóra viðburði í janúar, leikritið Andaðu, sem sett verður upp í Iðnó og ráðstefnu á Markþjálfunardeginum.

Ingibjörg fær listamenn til að hanna munstur silkislæðanna og vinnur náið með þeim.

„Þetta byrjaði allt fyrir fjórum árum. Ég var í samvinnu við Helgu Björnsson fatahönnuð og fór upp frá því að vinna með slæður. Núna hef ég gert þrjár línur með mismunandi hönnuðum. Ætli þetta sé ekki mín listræna útrás,“ segir Ingibjörg. „Að vera í hugmyndaflæði með listamönnum í hönnunarvinnunni gefur mér óskaplega mikið. Ferlið er svo skemmtilegt,“ segir hún.

„Í nýjustu línunni, sem nefnist Gyðjur, er það Katrín Ólína Pétursdóttir sem hannaði mynstrið. Ég er einstaklega heppin og þakklát þessum hönnuðum fyrir að hafa trú á mér.“

Ingibjörg Gréta hefur verið að markaðssetja Saga Kakala slæðurnar í Bandaríkjunum og hefur fengið afar góð viðbrögð, þar á meðal frá söngkonunni Aliciu Keys sem hefur skartað þeim meðal annars í þættinum The Voice.

„Þegar ég setti „veiðarfærin“ fyrst út í Bandaríkjunum fékk ég hringingu frá miklum reynslubolta í tískuheiminum sem óskaði eftir samstarfi við mig. Það var stórt tækifæri fyrir mig og lærdómur að þurfa að setjast niður og hugsa hvernig ég vildi markaðssetja vöruna. Ég valdi Alicu Keys úr hópi áhrifavalda og bauð henni slæður enda er hún ótrúlega flottur listamaður. Alicia varð mjög hrifin og það var mér hvatning. Hún hefur sett myndir af Saga Kakala slæðum á Snapchat og Insta­gram. Alicia er baráttukona sem eftir er tekið og það er mikils virði að fá hana til að bera slæðurnar,“ segir Ingibjörg.

„Þótt ég sé að markaðssetja vöruna í Bandaríkjunum legg ég ekkert síður mikla rækt við heimamarkað. Það koma einungis fimmtán slæður á íslenska markaðinn með eins mynstri þannig að hver slæða er einstök,“ segir Ingibjörg Gréta.

Hún ætlar ekki að láta staðar numið því núna er hún að þróa og hanna silkikjóla, með íslenskum fatahönnuði, og töskur. „Ég reikna með að sýna nýjar vörur á Hönnunarmars 2017. Við eigum mikla fjársjóði í íslenskum hönnuðum. Við leggjum mikla áherslu á gæði og að hver kona sem ber Saga Kak­ala slæðu sé með eitthvað alveg spes.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×