Nýjung í kaffimenningu Íslendinga: Bjóða frítt hágæðakaffi í desember Stefán Árni Pálsson skrifar 16. desember 2016 17:00 Óli Tómas með einn rjúkandi bolla.
Í áranna rás hefur kaffi verið talið munaðarvara hér á landi. Lengi vel hefur úrval af kaffi verið takmarkað við afar fáar vörutegundir og fábreytni í vöruúrvali hefur verið ríkjandi. Ekki fyrir svo löngu stofnuðu þeir Óli Tómas Freysson og Hjörvar Hermannsson Kaffiklúbbinn. Íslendingar hafa í auknum mæli gert auknar kröfur til þeirra vara sem eru á boðstólum. Sjaldan hefur aðgengi að hágæða kaffi verið meira á Íslandi heldur en hér og nú. Með inngöngu í Kaffiklúbbinn býðst áskrifendum tækifæri til að fá heimsent úrvals kaffi upp að dyrum. Í hverjum mánuði sendir Kaffiklúbburinn áskrifendum sínum mánaðarskammt af sérvöldu úrvalskaffi en starfsmenn Kaffiklúbbsins eru sérfræðingar á sínu sviði sem þekkja helstu strauma og stefnur í ríkjandi kaffimenningu og vilja miðla þeirri þekkingu til meðlima klúbbsins. „Kaffiklúbburinn hefur verið starfræktur á Íslandi í þrjú ár. Frá áramótum hefur meðlimafjöldi í klúbbnum margfaldast. Í ljósi velgengni klúbbsins hefur áhugi fyrirtækja á starfsemi Kaffiklúbbsins vaxið jafnt og þétt. Gaman er að sjá hversu hratt orðspor Kaffiklúbbsins hefur vaxið í kjölfar ánægju meðlima. Sú þjónusta sem Kaffiklúbburinn býður upp á höfðar jafnt til einstaklinga, hópa og fyrirtækja. Reynslan sýnir að desembermánuður hefur alltaf verið annasamasti mánuður ársins hjá Kaffiklúbbnum,“ segir Óli Tómas Freysson einn af stofnendum Kaffiklúbbsins. „Í anda jólanna höfum við hjá Kaffiklúbbnum ákveðið að bjóða öllum þeim sem skrá sig í desember upp á fría áskrift. Með áskrift að Kaffiklúbbnum býðst nýjum meðlimum að fá sína fyrstu sendingu af hágæða kaffi sér að kostnaðarlausu.“ Til að skrá sig í klúbbinn þurfa áhugasamir einfaldlega að heimsækja vefslóðina. Kaffi desember #kaffimanadarins #kaffiklubburinn A photo posted by Kaffiklúbburinn (@kaffiklubburinn) on Dec 13, 2016 at 2:18pm PST
Matur Mest lesið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Lífið Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Lífið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon Tónlist Bieber-hjónin eiga von á barni Lífið Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Lífið „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Lífið Fleiri fréttir Bjóða ókeypis vín gegn því að símar séu læstir inni í skáp Sjá meira