Reykjavíkurborg – örlagavaldur í kjarasamningagerð FT? Ave Kara Sillaots, Jens Sigurðsson, Jón Gunnar Margeirsson, Magna Guðmundsdóttir, Magnea Gunnarsdóttir og Vilhjálmur Sigurðarson og Örlygur Benediktsson skrifa 19. desember 2016 12:23 Það hefur valdið ýmsum heilabrotum um árabil hvernig á því geti staðið að Reykjavíkurborg virðist iðulega leggja línurnar í kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT). Hvaðan sækir borgin umboð sitt til sjálfskipaðrar forystu við þetta samningaborð?Umboð, ábyrgð og metnaður Innan stéttarinnar velkist enginn í vafa um hvaða áhrif þetta hefur haft í tveimur síðustu samningalotum. Mörgum finnst nóg um, enda vandséð að viðhorf og markmið borgarinnar á þessu sviði séu samrýmanleg aðstæðum í smærri sveitarfélögum víðs vegar um landið, þar sem tónlistarskólinn er oftar en ekki ein af lykilstoðum skólasamfélags og menningarlífs á hverjum stað. Höfuðborgin virðist á algjörlega öndverðum meiði og gerir hverja atlöguna eftir aðra að starfsemi tónlistarskóla innan sinna landamerkja. Raunar mætti segja að þessi staða sé tónlistarskólafólki, sveitarstjórnum og forstöðumönnum stofnana vel kunn.Óréttlæti og valdbeiting Reykjavíkurborg hefur að margra mati ítrekað orðið uppvís að metnaðarleysi í þessum málaflokki og því kemur sú stefna ekki á óvart, en tilhugsunin um að hún breiði faðm sinn yfir landið og miðin hlýtur að virka ósanngjörn. Getur hugsast að borgin hafi leyft sér að misnota aðstöðu sína við kjarasamningaborðið? Undanfarin misseri hafa fulltrúum FT ekki verið vandaðar kveðjurnar, þar sem borgin hefur ítrekað neytt aflsmunar vegna tiltekinna atriða sem FT fékk framgengt í kjarasamningi 2011. Þar tókst félaginu, eftir 10 ára þrautagöngu, að ná fram textalagfæringu sem batt enda á áralanga einhliða mistúlkun og ranga framkvæmd Reykjavíkurborgar á ákvæðum um lengd starfstíma tónlistarskóla. Þessi framganga borgarinnar hafði fært henni drjúgan skildinginn um margra ára skeið – beint úr vasa reykvískra tónlistarskólakennara, sem samfara þessu höfðu þurft að búa við stóraukið vinnuálag án nokkurra aukagreiðslna.Græddur eyrir Skiljanlega þótti vörslumönnum borgarsjóðs þetta súrt í broti, en frá og með 2011 hafa þeir þurft að haga framkvæmd þessara ákvæða eins og öll önnur sveitarfélög höfðu ávallt gert. Það er eftirtektarvert að borgin virðist stunda það að setja fram sjálfstæðar túlkanir sem fara gegn sameiginlegum skilningi allra annarra hlutaðeigandi aðila. Þar er skemmst að minnast hvernig hið jákvæða og framsýna samkomulag ríkis og sveitarfélaga (um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda) sem undirritað var með pompi og prakt í Hörpu vorið 2011, breyttist í martröð misseri síðar. Viti menn, Reykjavíkurborg var þar að verki með glænýja túlkun sem fór langt með að reka síðasta naglann í kistu tónlistarskólanna. Nú hefur borgin reyndar dregið í land með þetta túlkunaratriði, en gerði það þó ekki fyrr en í kjölfar sáttmála við ríkið um nýjan tónlistar-menntaskóla – sem nemur hundruðum milljóna á ársgrundvelli – þar sem ástæða þótti til að spyrja hvort sjónarmið borgarinnar verið tekin fram yfir hagsmuni heildarinnar og tónlistarskóla utan borgarmarkanna. Reyndar hefur menntamálaráðherra síðar fullyrt að þau framlög muni ekki hafa áhrif á framhaldsnám á landsbyggðinni. Við verðum að treysta á að þau orð standi.Hvaðan sækir Reykjavíkurborg umboð sitt? Margir eiga erfitt með að skilja hvernig borgin getur tekið yfir kjarasamningagerð sem samninganefnd Sambandsins hefur með höndum, ekki síst með hliðsjón af lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla (nr. 75/1985). Þar segir, í 9. grein: „Starfsmenn tónlistarskóla, sem eigi eru reknir af sveitarfélögum, en njóta styrks samkvæmt lögum þessum, skulu njóta launa í samræmi við kjarasamninga sem launanefnd sveitarfélaga [nú SNS] gerir við stéttarfélög þeirra á hverjum tíma, en þeir teljast starfsmenn viðkomandi skóla nema öðruvísi sé um samið.“ Þessi lagagrein tekur til velflestra tónlistarskóla í Reykjavík. Þetta vekur upp þá spurningu hvaðan Reykjavíkurborg sækir það vald sem hún beitir nú öðru sinni af alefli við samningaborðið gagnvart FT. Hafa stjórnir tónlistarskóla í Reykjavík veitt borginni formlegt umboð til að semja fyrir sína hönd? Það verður að teljast harla ólíklegt með hliðsjón af áherslum borgarinnar, sem ganga þvert gegn áherslum FT sem m.a. eru lagðar af félagsmönnum okkar úr hópi stjórnenda umræddra skóla. Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að „Kjaramálanefnd sambands íslenskra sveitarfélaga fer með samningsumboð Reykjavíkurborgar gagnvart Kennarasambandi Íslands“ (sem FT tilheyrir, vel að merkja).Landsbyggðin orðin langþreytt Við undirrituð erum orðin langþreytt á því að rödd landsbyggðarinnar virðist oftar en ekki vera höfð sem bakrödd þar sem höfuðborgin hrifsar einsöngshlutverkið. Hvers eiga hin sveitarfélögin að gjalda – og íbúar þeirra sem bæði þykir vænt um tónlistarskólana sína og vilja veg þeirra sem mestan? Við erum verulega hugsi yfir því hvort ekki sé orðið löngu tímabært að lagfæra þá skipulagslegu meinsemd sem hér virðist ríkja.Undir rita eftirtaldir tónlistarskólakennarar á landsbyggðinni: Ave Kara Sillaots, Tónlistarskólanum á TröllaskagaJens Sigurðsson, Tónlistarskóla Rangæinga Jón Gunnar Biering Margeirsson, Tónlistarskóla Ísafjarðar Magna Guðmundsdóttir, Tónlistarskólanum á AkureyriMagnea Gunnarsdóttir, Tónlistarskóla Árnesinga Vilhjálmur I. Sigurðarson, Tónlistarskóla ReykjanesbæjarÖrlygur Benediktsson, Tónlistarskóla Árnesinga Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Tengdar fréttir Öll í sama liðinu? Þegar þetta er ritað eru 410 dagar – hálfur fjórtándi mánuður – síðan kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) rann út. 16. desember 2016 15:45 Mest lesið Halldór 18.05.2024 Halldór Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson Skoðun Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Margrét Reynisdóttir Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir Skoðun Til áréttingar Kári Stefánsson Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann Skoðun Í framhaldi af viðtali við Helgu Þórisdóttur Kári Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða eiginleika þarf forseti að hafa? Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Þegar ég heyri nafnið Katrín Jakobsdóttir Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Í framhaldi af viðtali við Helgu Þórisdóttur Kári Stefánsson skrifar Skoðun Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Til áréttingar Kári Stefánsson skrifar Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson skrifar Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson skrifar Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Lexía lærð á hálfum degi Stefanía Arnardóttir skrifar Skoðun Ég kýs Helgu Þórisdóttur Gerður Rún Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Sjá meira
Öll í sama liðinu? Þegar þetta er ritað eru 410 dagar – hálfur fjórtándi mánuður – síðan kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) rann út. 16. desember 2016 15:45
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun