Lífið

Stórafmæli, plata og mynd hjá Ólafi Arnalds

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ólafur Arnalds er bjartsýnn, almennt séð, enda leikur lífið við hann þessa dagana.
Ólafur Arnalds er bjartsýnn, almennt séð, enda leikur lífið við hann þessa dagana. Vísir/Eyþór Árnason
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds fagnar þrítugsafmæli í dag og getur líka glaðst yfir glænýrri plötu sem heitir Island Songs. Í farvatninu er kvikmynd með sama nafni.

Ólafur er að stíga út úr flugvél í Keflavík þegar í hann næst, hann kippir sér ekki upp við símtalið. „Ég skrapp til London í nokkur viðtöl því að nýja platan mín var að koma út í fyrradag,“ segir hann.



Af hverju London?


„Ja, London er einhvern veginn miðstöð alls. Þar hafa flestir fjölmiðlar bækistöðvar og gera út þaðan. Svo er útgáfufyrirtækið þar líka og það hélt hóf í gær, þar var frumsýnd tónlistarbíómynd sem við Baldvin Z gerðum í sumar. Hún heitir Island Songs eins og platan og inniheldur lögin af plötunni.“ 



Var myndin tekin á Íslandi?


„Já, við Baldvin ferðuðumst um landið í sumar og tókum upp lög með tónlistarfólki í litlum bæjum um allt land. Myndin kemur reyndar ekki út fyrr en eftir jól en platan kemur á næstu dögum.“



Nú, svo er bara stórafmæli á morgun.


„Já, það skilst mér. Það er nú bara eitthvert fjölmiðlafólk sem er að minna mig á það. Ætli ég reyni ekki að bjóða í smá veislu.“



Þegar ég leitaði að myndum af þér í safninu okkar sá ég mynd af þér með tveimur forsetum, Vigdísi og Ólafi. Hvað kom til?


„Já, hún er frá því að ég tók við bjartsýnisverðlaununum. Þeir voru víst svo bjartsýnir á mína framtíð.“



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 3. nóvember 2016.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×