Þriðjungur flúinn vegna myglunnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. október 2016 06:00 Húsnæði Íslandsbanka á Kirkjusandi er illa farið vegna myglusvepps. vísir/pjetur
Hundrað og fimmtíu starfsmenn af þeim 400 starfsmönnum sem störfuðu í höfuðstöðvum Íslandsbanka á Kirkjusandi hafa verið færðir tímabundið á aðrar starfsstöðvar. Það eru 38 prósent starfsmanna. Ástæðan er rakaskemmdirnar í húsinu. Fólk, sem hefur fundið fyrir einkennum myglu, hefur verið flutt á starfsstöðvar bankans á Suðurlandsbraut, Lynghálsi og á Granda. Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka, segir að stjórnendur Íslandsbanka fundi reglulega og fylgist vel með stöðunni og líðan starfsfólks. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um það hvort húsnæði bankans á Kirkjusandi verður rifið. Starfsmenn bankans byrja að flytja í Norðurturninn í Smáralind í lok nóvember og eftir það verður tekin ákvörðun um framtíð hússins á Kirkjusandi. Þegar Íslandsbanki birti uppgjör fyrir fyrri helming ársins kom fram að virði húsnæðisins hefði verið fært niður um 1,2 milljarða vegna skemmdanna. „Við tókum þessa lækkun á það núna af því að við vitum ekkert hvað verður um húsið,“ sagði Birna Einarsdóttir bankastjóri við Fréttablaðið um niðurfærsluna og bætti við að það myndi kosta miklar fjárhæðir að gera við húsið. Birna lagði áherslu á að Reykjavíkurborg fari með skipulagsvaldið og húsið yrði ekki rifið án samráðs við borgaryfirvöld. Fram hefur komið að nýtt útibú Íslandsbanka verði opnað í Norðurturninum í nóvember. Hefur vinna við sameiningu útibúa staðið yfir í nokkra mánuði. Útibúin í Þarabakka, á Digranesvegi og Garðatorgi verða sameinuð í eitt útibú.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Mygluskemmdir kosta Íslandsbanka 1,2 milljarða Bankinn hefur ekki tekið ákvörðun um hvort rífa eigi húsnæðið. 24. ágúst 2016 11:00 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Sjá meira
Mygluskemmdir kosta Íslandsbanka 1,2 milljarða Bankinn hefur ekki tekið ákvörðun um hvort rífa eigi húsnæðið. 24. ágúst 2016 11:00